Carragher: Karius er ekki nógu góður fyrir Liverpool Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. desember 2016 13:15 vísir/getty
Loris Karius átti slakan leik í marki Liverpool þegar liðið tapaði 4-3 fyrir Bournemouth í 14. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Karius hefur fengið mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína og meðal þeirra sem hafa baunað á þýska markvörðinn er Jamie Carragher, sparkspekingur á Sky Sports og fyrrverandi leikmaður Liverpool. „Hann hefur ekki enn sannfært mig um að hann sé nógu góður,“ sagði Carragher sem vill meina að Karius hefði átt sök á öðru og fjórða marki Bournemouth. Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan. „Hann hefur bara byrjað átta leiki, og hver veit hvað hann gerir á næstu 2-3 árum, en hann þarf að bæta sig gríðarlega mikið. Hann hefur ekki gert neitt til að hrífa mig í þessum leikjum,“ bætti Carragher við.Klopp hughreystir Karius eftir leikinn á Dean Court í gær.vísir/gettyKarius var keyptur frá Mainz 05 fyrir tímabilið og tók aðalmarkvarðarstöðuna af Simon Mignolet. Carragher segir að það sé engin lausn að setja Mignolet aftur í markið, hann sé ekki heldur nógu góður. „Það er engin tilviljum að Liverpool hefur brotnað niður á undanförnum 2-3 árum þegar liðið er sett undir pressu. Ég hef sagt það áður að Simon Mignolet er ekki nógu góður,“ sagði Carragher. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, kom Karius til varnar eftir leikinn í gær. „Ég hef ekki neinar áhyggjur. Ef þú gerir mistök ertu gagnrýndur. Ég er viss um að Jamie Carragher fékk sinn skerf af gagnrýni á ferlinum. Síðasta markið segir ekkert um hann [Karius] sem markvörð. Svona lagað gerist,“ sagði Klopp um landa sinn.
Enski boltinn Tengdar fréttir Klopp: Verðskuldaður sigur hjá Bournemouth Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var hreinskilinn er hann sagði sigur Bounemouth hafa verið verðskuldaðan eftir að lærisveinar hans köstuðu frá sér tveggja marka forskoti. 4. desember 2016 18:31 Liverpool og Man Utd fóru illa að ráði sínu | Sjáðu mörkin Liverpool og Manchester United riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum í ensku úrvalsdeildinni í gær. 5. desember 2016 10:00 Bournemouth vann upp tveggja marka forskot Liverpool í ótrúlegum sigri | Sjáðu mörkin Bournemouth vann ótrúlegan 4-3 sigur á Liverpool í hádegisleiknum í enska boltanum þrátt fyrir að hafa í tvígang lent tveimur mörkum undir en lánsmaður frá Chelsea skoraði sigurmark Bournemouth í leiknum. 4. desember 2016 15:15 Mest lesið „Fyrir mig er mikilvægt að liðið geri það sem við biðjum um“ Körfubolti „Sóknin alls ekki klár hjá okkur“ Körfubolti „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Handbolti GAZið: „Þegar svona mikil velgengni er, þá kemur smá doði í mannskapinn“ Körfubolti Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Á skotskónum í framrúðubikarnum Enski boltinn Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun Handbolti Beeman með sýningu í fyrsta sigri nýliðanna Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 103-77 | Unnu Íslandsmeistarana en steinlágu gegn nýliðunum Körfubolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 67-61 | Grindavík skrefi á undan Val Körfubolti Fleiri fréttir Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Sjá meira
Klopp: Verðskuldaður sigur hjá Bournemouth Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var hreinskilinn er hann sagði sigur Bounemouth hafa verið verðskuldaðan eftir að lærisveinar hans köstuðu frá sér tveggja marka forskoti. 4. desember 2016 18:31
Liverpool og Man Utd fóru illa að ráði sínu | Sjáðu mörkin Liverpool og Manchester United riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum í ensku úrvalsdeildinni í gær. 5. desember 2016 10:00
Bournemouth vann upp tveggja marka forskot Liverpool í ótrúlegum sigri | Sjáðu mörkin Bournemouth vann ótrúlegan 4-3 sigur á Liverpool í hádegisleiknum í enska boltanum þrátt fyrir að hafa í tvígang lent tveimur mörkum undir en lánsmaður frá Chelsea skoraði sigurmark Bournemouth í leiknum. 4. desember 2016 15:15
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 103-77 | Unnu Íslandsmeistarana en steinlágu gegn nýliðunum Körfubolti
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 103-77 | Unnu Íslandsmeistarana en steinlágu gegn nýliðunum Körfubolti