Lífið

Litli drengurinn úr Two and a Half Men óþekkjanlegur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Angus T Jones var einn sá allra krúttlegasti á sínum tíma.
Angus T Jones var einn sá allra krúttlegasti á sínum tíma. vísir/getty
Leikarinn Angus T Jones er þekktastur fyrir hlutverk sitt í gamanþáttunum Two and a Half Men en þar lék hann krúttalega drenginn Jake Harper.

Í dag er hann 22 ára og hefur heldur betur fullorðnast og breyst mikið í útliti. Þættirnir voru á dagskrá á árunum 2003-2015 og náði miklum vinsældum. Með aðalhlutverkin fóru Charlie Sheen, Jon Cryer og síðar Ashton Kutcher.

Myndir náðust af Angus T Jones  við Venice ströndina í Bandaríkjunum á mánudaginn og er kallinn að styðjast við aðeins annað útlit en í þáttunum. Hann er orðinn mjög síðhærður og með skegg. Hér að neðan má sjá nýja mynd af leikaranum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×