3,2 milljónir Renault Kangoo Finnur Thorlacius skrifar 12. maí 2016 14:57 Renault Kangoo nr. milljón rúllar af færiböndunum í Maubeuge í Frakklandi.
Á dögunum rúllaði milljónasti sendibíllinn af annarri kynslóð Rrenault Kangoo af færibandinu í verksmiðju fyrirtækisins í Maubeuge í Frakklandi. Kangoo kom fyrst fram á sjónarsmiðið árið 1998 og hafa meira en 3,2 milljónir eintaka verið framleiddar síðan þá, eða hátt í 200 þúsund eintök á ári að meðaltali. Önnur kynslóð þessa vinsæla borgarsendibíls kom á markað árið 2007 og nýlega hlaut hann lítilsháttar andlitsupplyftingu á framenda í samræmi við nýjustu öryggiskröfur auk þess sem Kangoo er nú einnig boðinn í rafmagnsútfærslu.Sá mest seldi í 18 ár Renault Kangoo þjónar fjölbreyttum hópi viðskiptavina með ólíkar þarfir og því er ekki að undra þótt á fjórðu milljón eintaka hafi verið framleiddar af þessum hagkvæma atvinnubíl frá því að hann kom á markað fyrir átján árum. Renault býður fjölbreytt úrval sendibíla og hefur Renault verið mest seldi sendibíll Evrópu í samfellt 18 ár. Á síðasta ári voru um 270 þúsund eintök seld í Evrópu.
Mest lesið Leiðtogi Hezbollah allur Erlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Lægð stjórnar veðrinu um helgina Veður