Lífið

Skætt sjóslys fyrir 80 árum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þrímastra seglskipið Purquoi Pas? siglir út úr Reykjavíkurhöfn.
Þrímastra seglskipið Purquoi Pas? siglir út úr Reykjavíkurhöfn. Mynd/Karl Christian Nielsen/Ljósmyndasafn Reykjavíkur
„Þetta var dramatískur atburður og vakti gríðarlega athygli bæði hér á Íslandi og ekki síður í Frakklandi. Leiðangursstjórinn Charcot var vissulega í hópi þekktustu vísindamanna þar á sínum tíma.“

Þetta segir Illugi Jökulsson rithöfundur um sjóslysið stóra fyrir 80 árum þegar franska rannsóknarskipið Purquoi-Pas? (Hversvegna ekki?) fórst við Álftanes á Mýrum og með því 40 manns. Illugi verður með hádegisfyrirlestur um það á morgun í Sjóminjasafninu á Grandagarði.



Illugi heldur hádegisfyrirlestur á morgun í Sjóminjasafninu. Fréttablaðið/Stefán
Illugi segir mörg skip hafa farist við Mýrar á fyrri tíð. „En það þótti merkilegt að svona þrautreynt skip eins og Purquoi-Pas? með svona þrautreynda áhöfn skyldi lenda í því,“ segir hann og bætir við: „Charcot hafði komið oft til landsins, var þekktur hér og virtur vel. Ég ætla að segja svolítið frá ævi hans og rekja það sem ég veit um þessa síðustu siglingu skipsins.“

Franska sendiráðið, Háskóli Íslands og Vináttufélag Charcots og Pourquoi-Pas? standa einnig að viðburðum, í samstarfi við afkomendur Charcots sem hingað fjölmenna af þessu tilefni.

Nú í dag klukkan 10 er athöfn í Straumfirði á Mýrum og í kvöld forsýning á nýrri heimildarmynd um Charcot í Alliance française, Tryggvagötu 8. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir en myndin er á frönsku og ekki textuð.

Á morgun klukkan 10 er svo minningarmessa í Landakotskirkju og fleiri viðburðir eru á dagskránni.



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 15. sseptember 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×