Lífið

Amy Schumer lét fleygja dóna út af uppistandi sínu sem bað hana um að sýna á sér brjóstin

Birgir Olgeirsson skrifar
Amy Schumer lét ekki bjóða sér þetta.
Amy Schumer lét ekki bjóða sér þetta. Vísir/YouTube
Það voru ekki nema tvær mínútur liðnar af uppistandi bandaríska grínistans Amy Schumer í Stokkhólmi í Svíþjóð í gærkvöldi þegar hún henti dóna út úr salnum sem skipaði henni að sýna á sér brjóstin.

Án þess að hika stöðvaði Schumer grínið og beindi sjónum sínum að manninum. Hún bað áhorfendur um að benda sér á hver viðkomandi væri og varað hann við því að ef hann myndi segja þetta aftur þá yrði honum fleygt út úr húsi og hann gæti beðið fólk þar um að sýna á sér brjóstin.

Schumer hélt síðan uppistandinu áfram en komst ekki langt því maðurinn hrópaði á hana á ný og lét hún því fleygja honum út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.