Lífið

Hélt veislu með Orra afa

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Bríeti Hrefnu  finnst skemmtilegast að fara í tívolí og að eiga afmæli.
Bríeti Hrefnu finnst skemmtilegast að fara í tívolí og að eiga afmæli. Vísir/Stefán
Bríet Hrefna er fimm ára núna en er samt alveg að verða sex. Hún er nýlega búin að kveðja leikskólann Kór og byrjar bráðum í Hörðuvallaskóla. Skyldi hún ekki vera spennt? Jú, ég er mjög spennt. Ég held að það verði skemmtilegast ef við fáum að mála stofuna.

Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu?

Í sumar ætla ég að fara í Disneyland og Lególand (þess má geta að þetta hefur ekki verið borið undir foreldra barnsins). En veistu, Orri afi varð sextíu ára um síðustu helgi og við héldum veislu saman.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?

Mér finnst skemmtilegast að fara í tívolí og að eiga afmæli.

Hver eru áhugamál þín?

Ertu að meina eins og að vera í sandkassa og svona? Það er samt ekki að vera í sandkassa, það eru trampólín og fimleikar.

Hvað er uppáhaldsdýrið þitt?

Röndótt fiðrildi og Dorrit, hundurinn sem vinir mínir eiga.

Ertu að æfa eitthvað?

Já, ég er æfa að fimleika með Gerplu og svo ætla ég að fara í fótbolta með HK í haust. Vinkonur mínar ætla með mér fótbolta.

Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðin stór?

Ég ætla að verða flugkona og búðarkona í Krónunni. Svo ætla ég að verða eitthvað annað sem ég veit ekki alveg. Ég ákveð það þegar ég verð fullorðin.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. ágúst 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.