Veiði

Langá full af laxi en takan getur verið treg

Karl Lúðvíksson skrifar
Glanni í Langá
Glanni í Langá
Veiðin hefur verið góð það sem af er sumri í Langá á Mýrum en það er sama sagan þar og víðar á landinu.

Takan suma dagana dettur ansi mikið niður eftir hádegi en sem betur fer eru morgnarnir í ánni góðir.  Það er nokkuð algengt af morgunvaktin sé að skila 20-25 löxum á land og almennt eru flestir veiðimenn í mikilli töku og missa laxa eins og gengur og gerist.  Síðari vaktin aftur á móti hefur verið afskaplega róleg og stangirnar tólf sem veiða ánna yfirleitt í 5-10 löxum á seinni vakt og tökurnar eru sára fáar.

Það er gott vatn í ánni og hún er ekki of heit.  Þegar það eru heitir sólardagar er það auðvitað vel þekkt að takan dettur niður en t.d. í dag þegar það er skýjað og allar aðstæður hinar bestu er takan bara dottin niður eftir hádegið.  Ekki er það laxleysið því teljarinn við Skugga stendur í 2.000 löxum og síðustu daga fer greinilega mikið af laxi upp fossinn sjálfan en ekki laxastigann þar sem áin er í góðu vatni.

Laxinn hefur straujað í gegnum neðstu staðina og staldrar fyrst við á eyrunum ofan við Kattarfossgljúfur.  Þar fyrir ofan eru allir þekktir veiðistaðir meira og minna fullir af laxi.  Bestu veiðina á kvöldvaktinni í dag gerði veiðimaður sem skaust uppí Ármót sem er efsti veiðistaðurinn í Langá.  Þar tók hann fjóra laxa, þrjá dæmigerða eins árs laxa og einn 85 sm.  Þar að auki tók hann tveir rígvænar bleikjur og urriða.






×