Slitnaði upp úr álversdeilunni í nótt

Ríkissáttasemjari boðaði deiluaðila til fundar á þriðjudag. Þá hafði ekki verið fundað í deilunni síðan um miðjan síðasta mánuð. Guðmundur Ragnarsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna segir lítið hafa gengið í samningaviðræðum.
„Þetta er óbreytt ástand en við erum að ræða saman. Það er svo sem ekkert nýtt í kortunum og þetta í raun gengur lítið þegar báðir aðilar eru ekki að koma að borðinu með því hugarfari að mætast á miðri leið,“ segir hann. Hann segist nokkuð svartsýnn á að samningar takist í bráð.
„Rio Tinto er bara búið að leggja fram eitthvað plagg sem við eigum að kyngja með öllu. Þá náttúrulega eru menn ekkert að semja. Við erum ekki að semja við íslenska stjórnendur eða Samtök atvinnulífsins. Við erum að semja hér við þá sem eru að reka alþjóðlegan auðhring og ég held að þeir séu ekkert tengdir við íslenskan raunveruleika. Það er kannski vandamálið okkar,“ segir Guðmundur.
Stjórnendur álversins í Straumsvík hafa meðal annars farið fram á aukna heimild til verktöku og hafa deilurnar meira og minna snúist um þá kröfu. Starfsmenn segjast þó ekki sætta sig við það. Guðmundur segir álverið ekkert hafa dregið í land hvað það varði. „Þeir hafa engar breytingar gert á sínu plaggi,“ segir hann. Það sæti mikilli furðu.
Aðspurður hvort gripið verði til aðgerða að nýju segir hann enga ákvörðun hafa verið tekna í þeim efnum. „Við erum bara að koma úr hátíðunum og það var ákveðið þegar slitnaði endanlega upp úr viðræðunum í desember að við myndum bara láta hátíðirnar líða. Við höfum svo sem ekki sest yfir neitt til að ákveða eitt eða neitt.“
Tengdar fréttir

Tæpir tveir milljarðar frá Straumsvík til móðurfélagsins á síðasta ári
Taprekstur hefur verið á álverinu undanfarið, þó með undantekningu á síðasta ári, en greiðslurnar eru ekki nýjar af nálinni.

Býst við uppsögnum í álverinu
Formaður vélstjóra og málmtæknimanna segir starfsandann sjaldan hafa verið verri.

Rannveig Rist segir löngu tímabært að fá niðurstöðu í kjaraviðræðurnar
"Deilan snýst um þá staðreynd að ISAL situr ekki við sama borð og önnur fyrirtæki hvað varðar möguleika á útvistun verkefna,“ segir forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi.

Telur Rio Tinto tilbúið að stanga Landsvirkjun
Hótun um lokun álversins í Straumsvík beinist í raun að Landsvirkjun til að þrýsta á um lækkun orkuverðs.

Rannveig Rist segir engin áform um að loka álverinu
„Við erum ekki á förum,“ segir Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi.

Ríkissáttasemjari ræður næstu skrefum
Engar viðræður hafa farið fram í kjaradeilu starfsmanna við álverið í Straumsvík frá því verkfalli var aflýst. Samtök atvinnulífsins segja ákvæði um verktöku í veginum.

Milljarðar frá Rio Tinto í Straumsvík til Rio Tinto í Sviss þrátt fyrir tap
Kaupa súrál af móðurfélaginu og greiða fyrir einkaleyfi og fleira.

„Vægast sagt sérstök staða og ekki trúverðug“
Talsmaður starfsmanna álversins í Straumsvík telur líklegt að stjórnendur hyggist loka álverinu.

Formaður VM um Rio Tinto: „Hroki þeirra og framganga er ný fyrir okkur“
Guðmundur Ragnarsson segir ákvörðun samninganefndar starfsmanna ÍSAL um að aflýsa verkfalli hafi verið það eina rétta sem hægt var að gera eins og viðræðurnar þróuðust.

Milljarða kostnaðargreiðslur frá álverunum til móðurfélaganna
Samtals greiddu álverin um 3,6 milljarða króna til móðurfélaga sinna á síðasta ári en tvö álver standa undir stærstum hluta kostnaðarins.