Bíó og sjónvarp

Game of Thrones: Sumir eru komnir lengra en aðrir

Samúel Karl Ólason skrifar
Tyrion Lannister.
Tyrion Lannister.
Eftir sex þáttaraðir af Game of Thrones eru einhverjar persónur sem hafa farið í heiljarinnar ferðalög. Bæði með tilliti til vegalengdar og til persónulegrar þróunar. Þar af eru nokkrir sem hafa komið lengra en aðrir.

TheGaroStudios á Youtube hafa nú gert nokkurs konar yfirlitsmyndband fyrir Tyrion Lannister, sem hefur þurft að þola ansi mikið. Það er óhætt að segja að þarna megi finna nokkur „gæsahúðarmóment“, ef svo má að orði komast.

Augljóslega ætti fólk sem hefur ekki horft á alla þættina ekki að horfa á þetta myndband nema það vilji mögulega láta skemma fyrir sér.





Tyrion er þó ekki sá eini sem hefur fengið svo konunglega meðferð. Frá því að síðustu þáttaröð lauk hafa sambærileg myndbönd einnig verið gerð um Jon Snow. Þar af eru tvö sem standa öðrum fremur.

Jon Snow hefur farið lengra en allir aðrir. Hann fæddist bastarður, veit ekki að hann er af tveimur ættum konunga, hefur þurft að myrða vini sína, var myrtur af vinum sínum, endurlífgaður og er nú orðinn konungur Norðursins eftir að hafa drepið mann sem átti ekki einn vin.

Hægt er að sjá þau hér að neðan.

King in the North The White Wolf





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.