Lífið

Eiður Smári á ljótasta bílinn og Jón Daði með minnsta tískuvitið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jói Berg, Alfreð og Gylfi fara á kostum í innslaginu.
Jói Berg, Alfreð og Gylfi fara á kostum í innslaginu.
Alfreð Finnbogason, Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson upplýsa um ýmislegt í karlalandsliðinu í nýju innslagi sem Alfreð birtir á Twitter. Þar er meðal annars spurt út í það hver sé mesti brandarakarlinn í liðinu en þar þurfa Alfreð og Gylfi að leiðrétta Jóa Berg.

Meðal þess sem fram kemur er að Jóhann Berg er mesta tæknitröllið, Eiður Smári keyrir ljótasta bílinn og Jón Daði hefur minnsta tískuvitið, enda sé honum alveg sama þegar kemur að því. Einnig er upplýst hver vælir mest, hver sé með besta tónlistarsmekkinn og hver sé besti leikmaðurinn. Þar eru Gylfi og Jói Berg sammála en Alfreð á öðru máli.

Innslagið má sjá hér að neðan.

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×