Innlent

Mosfellsbær lækkar útsvar

Atli Ísleifsson skrifar
Einnig er gert ráð fyrir að lækka fasteignaskatt úr 0,265 prósent í 0,253 prósent.
Einnig er gert ráð fyrir að lækka fasteignaskatt úr 0,265 prósent í 0,253 prósent. Vísir/GVA
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt að lækka útsvarsprósentu úr 14,52 prósent í 14,48 prósent.

Í tilkynningu frá bænum segir að ákvörðunin sé tekin í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar bæjarins. Þá sé einnig gert ráð fyrir því að lækka fasteignaskatt úr 0,265 prósent í 0,253 prósent og lækkun vatnsgjalds.

„Lagt er til að álagningarhlutföll fasteignagjalda lækki til að koma til móts við þá auknu eignarmyndun sem átt hefur sér stað hjá íbúum með hækkun fasteignamats. Almennt er ekki gert ráð fyrir gjaldskrárhækkunum, t.a.m verða leikskólagjöld óbreytt annað árið í röð.

Fjárhagsleg staða Mosfellsbæjar er traust og reksturinn góður. Í fjárhagsáætlun gert ráð fyrir aukinni þjónustu til barnafjölskyldna en lækkun skatta og gjalda skilar sér til allra greiðenda í sveitarfélaginu.  Gert er ráð fyrir að skuldaviðmið, sem sett er í sveitarstjórnarlögum, verði 105,8% af tekjum í lok næsta árs.

Seinni umræða fjárhagsáætlunar fer fram í bæjarstjórn Mosfellsbæjar 7. desember næstkomandi,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×