Lífið

Justin Bieber mættur: Aðdáendur mættu á Reykjavíkurflugvöll til að berja goðið augum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Aðdáendur Bieber mættu á Reykjavíkurflugvöll til að taka á móti honum þegar hann kom til landsins.
Aðdáendur Bieber mættu á Reykjavíkurflugvöll til að taka á móti honum þegar hann kom til landsins. vísir/anton brink
Fjöldi fólks er nú staddur á Reykjavíkurflugvelli þar sem einkaþota lenti í hádeginu en Justin Bieber lenti þar um klukkan 12. Bieber heldur tvenna tónleika hér á landi í vikunni, á morgun og föstudagskvöld, í Kórnum í Kópavogi.

Bieber á sér gríðarlega stóran aðdáendahóp og á meðal þeirra eru einhverjir sem ekki geta beðið eftir að berja goðið augum Kórnum þar sem margir mættu á Reykjavíkurflugvöll til að fylgjast með þegar þotan lenti. Blaðamaður Vísis sem er á staðnum telur að um 100 manns séu við Reykjavíkurflugvöll til að fylgjast með komu söngvarans. 

Poppstjarnan kom út úr vélinni um klukkan 12:30 en áður var búið að tína farangur úr henni. Þar á meðal voru hjólabretti, brimbretti, íshokkíkylfur og gítar.

Vísir var með beina útsendingu frá Reykjavíkurflugvelli þegar Bieber lenti og verður hægt að sjá útsendinguna í heild sinni hér á vefnum innan skamms.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.