Amy Schumer: Hver sá sem er ekki femínisti hlýtur að vera klikkaður Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. september 2016 09:01 Amy Schumer. vísir/getty
Bandaríski grínistinn Amy Schumer segir að hver sá sem kalli sig ekki femínista hljóti að vera klikkaður og mögulega ekki vita hvað femínismi er. Schumer var í viðtali í fréttaskýringaþætti BBC, Newsnight, í gærkvöldi en hún var með uppistand í London á sunnudagskvöld. Í liðinni viku kom hún einnig fram í Osló og Kaupmannahöfn en uppistandstúr hennar heldur svo áfram í Bandaríkjunum í næstu viku. Schumer er sjálf yfirlýstur femínisti og ræddi femínisma í viðtalinu á BBC í gær. „Ég held að hver sá sem er ekki femínisti hljóti að vera klikkaður og ég held að þeir viti ekki hvað femínismi þýðir. Hann þýðir einfaldlega jafnrétti fyrir konur en orðið hefur ýmsa mismunandi merkingu fyrir mismundandi einstaklinga. Sumir segja við mig „Þú ert ekki femínisti, er það nokkuð?“ og ég er bara „Hvað þýðir það fyrir þér? Auðvitað er ég femínisti. Auðvitað vil ég jafnrétti fyrir konur.““ Þá grínaðist Schumer með að ef Trump yrði kosinn forseti Bandaríkjanna þá myndi hún læra spænsku og flytja úr landi. „Uppistandið mitt mun breytast því ég mun þurfa að læra spænsku því ég mun flytja til Spánar eða eitthvað ef Trump vinnur. Það er mér óskiljanlegt ef Trump vinnur. Það er of ruglað,“ sagði Schumer. Nánar er fjallað um viðtalið við Schumer á vef BBC.
Mest lesið Dóra Júlía og Bára gengu í það heilaga Lífið Viðtöl ársins 2024: Óvænt andlát, ófrjósemi og flutningar til Bandaríkjanna Lífið Andrew Garfield á Íslandi Lífið Blökastið hringir inn nýja árið með Nýársbingó Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Margmenni í Bláfjöllum Lífið Brúðkaup ársins 2024 Lífið Katrín Tanja trúlofuð Lífið Dagbók móður: „Munum við fara fjárhagslega á hausinn?“ Áskorun Steven og Guðný Ósk eru nýtt par Lífið Fleiri fréttir Dóra Júlía og Bára gengu í það heilaga Blökastið hringir inn nýja árið með Nýársbingó Viðtöl ársins 2024: Óvænt andlát, ófrjósemi og flutningar til Bandaríkjanna Margmenni í Bláfjöllum Andrew Garfield á Íslandi Katrín Tanja trúlofuð Steven og Guðný Ósk eru nýtt par Fræga fólkið streymdi á hápunkt ársins í Þjóðleikhúsinu Sjáðu Sandler snúa aftur sem Happy Gilmore í nýrri kitlu Björn Ingi leikur í ofurhetjumynd Eiga nú glöðustu hunda í heimi Lést eftir að hafa fallið úr bíl á ferð Brúðkaup ársins 2024 Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Króli trúlofaður Jólagjafir íslenskra vinnustaða Jólagjöf ársins er stóllinn sem getur allt nema flogið Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Smakkaði skötu í fyrsta sinn undir eftirliti sérfræðinga Guðmundur „ofpeppaðist“ og reif sig á kassann Hafi ekki tekið þátt í herferð gegn Lively Einn frægasti krókódíll í heimi allur Myndaveisla: Rauð jól hjá Jökli í Kaleo „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Ellen Margrét og Arnmundur orðin hjón Kolféll fyrir Amsterdam og hollenskum strák Límdi fyrir munninn á öllum við borðið „Fyrstu jólin án hans og sætið hans verður tómt“ Stjörnulífið: Bikiníjól og jól í Japan Frægir fundu ástina 2024 Sjá meira