Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn síðdegis grunaður að halda úti vefsíðu sem sýndi börn í kynferðislegum tilgangi. Maðurinn er grunaður um kynferðislega áreitni og vörslu barnakláms. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Í kvöldfréttum verður einnig rætt við leiðtoga stjórnmálaflokkanna en þeir funduðu með formanni Vinstri grænna í dag. Leiðtogar fyrrverandi stjórnarandstöðuflokka voru almennt jákvæðir eftir fundi sína með Katrínu Jakobsdóttur í dag en það kemur í ljós um eða upp úr helginni hvort grundvöllur er til formlegra stjórnarmyndunarviðræðna.

Einnig verður fjallað um gríðarlegt álag á starfsmönnum Útlendingastofnunar sem tekið hafa á móti tvö hundruð hælisleitendum í nóvember.

Þetta og miklu meira til í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×