Innlent

Háskóladeild stofnuð hjá SFR

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Guðrún Kristín Svavarsdóttir nýr formaður háskóladeildar SFR.
Guðrún Kristín Svavarsdóttir nýr formaður háskóladeildar SFR. Vísir
Háskóladeild var stofnuð innan SFR stéttarfélags í almannaþjónustu þann 17. nóvember síðastliðinn á afmælisdegi félagsins. Þetta er í fyrsta sinn sem slík deild starfar innan SFR en um 11-15 prósent félagsmanna eru háskólamenntaðir og fer fjölgandi.

Um þrjátíu félagsmenn úr SFR mættu á stofnfund háskóladeildar félagsins þar sem Árni Stefán Jónsson formaður SFR ávarpaði fundinn og óskaði fundarmönnum til hamingju með daginn.

Þá greindu Bryndís Theodórsdóttir varaformaður og Alma Lísa Jóhannsdóttir sérfræðingur á kjara- og félagssviði SFR frá undirbúningi að stofnun deildarinnar, viðfangsefnum hennar og markmiðum.

Í samþykktum deildarinnar sem samþykktar voru á fundinum kemur meðal annars fram að viðfangsefni hennar skulu vera að gæta hagsmuna félagsmanna á vinnumarkaði og vera málssvari þeirra, halda uppi kynningar- og félagsstarfi með deildarfélögum, efla þekkingu þeirra og stuðla að fræðslustarfi.

Rétt til aðildar að Háskóladeild SFR eiga þeir félagsmenn sem lokið hafa Bachelor gráðu eða sambærilegu námi en auk þess geta þeir félagsmenn sem lokið hafa fyrsta námsári eða 60 ECTS einingum á háskólastigi einnig sótt um fulla aðild að deildinni.

Í stjórn deildarinnar sem kosin var á stofnfundinum sitja; Guðrún Kristín Svavarsdóttir starfsmaður Landspítala sem kjörin var formaður deildarinnar, Augustin Dutatanye starfsmaður hjá Reykjavíkurborg, Ingiríður Blöndal hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, Ólafía Sævarsdóttir hjá Tryggingastofnun ríkisins, Sólveig Jónasdóttir hjá SFR stéttarfélagi, Svanhildur Steinarsdóttir hjá Menntamálastofnun og Sveinn Sveinsson hjá Vinnumálastofnun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×