Innlent

Hreinsistarfi lokið við Hverfisgötu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Slökkviliðið að störfum.
Slökkviliðið að störfum. Vísir/Anton
Slökkviliðið hefur lokið hreinsunarstarfi við Hverfisgötu eftir saltsýruleka við Hverfisgötu 50 í morgun.

Brúsi með saltsýru fór á hliðina og talið er að um 10-15 lítrar af saltsýru hafi lekið niður. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu gekk hreinsunarstarf vel og búið er að opna fyrir umferð á Hverfisgötu.


Tengdar fréttir

Saltsýruleki á Hverfisgötu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokað af Hverfisgötu vegna eiturefnaleka við Hverfisgötu 50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×