Innlent

Saltsýruleki á Hverfisgötu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu nú við að hreinsa upp saltsýruna
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu nú við að hreinsa upp saltsýruna Vísir/Anton
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokað af Hverfisgötu vegna eiturefnaleka við Hverfisgötu 50. Brúsi með saltsýru fór á hliðina og talið er að 10-15 lítrar af efninu hafi lekið úr brúsanum.

Svo virðist sem að engum hafi orðið meint af og vinnur Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu nú við að hreinsa upp saltsýruna sem er nokkuð tímafrekt samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×