Innlent

Greiða út desemberuppbót til atvinnuleitenda

Atli Ísleifsson skrifar
Gert er ráð fyrir að desemberuppbætur verði greiddar út eigi síðar en 18. desember.
Gert er ráð fyrir að desemberuppbætur verði greiddar út eigi síðar en 18. desember. Vísir/hanna
Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur sett reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Óskert desemberuppbót er 60.616 krónur.

Frá þessu segir í frétt velferðarráðuneytisins. Þar segir að nýmæli séu að atvinnuleitendur með börn á framfæri fái jafnframt sérstaka uppbót sem nemi fjögur prósentum af óskertri desemberuppbót, eða rúmum 2.400 krónum fyrir hvert barn yngra en átján ára.

„Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2016 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánuða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur.

Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum, heldur nemur í öllum tilvikum 4% af óskertri desemberuppbót sem eru rúmar 2.400 kr. fyrir hvert barn.

Gert er ráð fyrir að desemberuppbætur verði greiddar út eigi síðar en 18. desember,“ segir í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×