Innlent

Læknar tvisvar skoðað sjúkraskýrslur í óleyfi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Strangar reglur og aðgangsstýringar eru á Landspítalanum um aðgang að sjúkraskýrslum.
Strangar reglur og aðgangsstýringar eru á Landspítalanum um aðgang að sjúkraskýrslum. vísir/vilhelm
Tvisvar á síðustu tíu árum hefur það gerst að læknir hefur skoðað sjúkraskýrslu einstaklings án þess að hafa til þess ástæðu. Þetta kemur fram í svari Landspítalans við fyrirspurn Fréttablaðsins.

Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækningavísir/ernir
Fyrir skemmstu birti Persónuvernd ákvörðun í máli sem laut að kvörtun fyrrverandi eiginkonu læknis á spítalanum. Taldi konan að hann hefði skoðað sjúkraskrá hennar þrátt fyrir að hún hefði bannað honum það. Skilnaður þeirra hefði verið harkalegur og læknirinn hefði í hyggju að nota gögnin í annarlegum tilgangi. Læknirinn hafði skoðað skýrslu hennar í fjórgang og hafði gildar skýringar í þrjú þeirra skipta. Honum var veitt áminning fyrir brot sitt af spítalanum. Ákvörðun Persónuverndar fólst í því að fela spítalanum að setja reglur um aðgang starfsmanna að skýrslum fjölskyldumeðlima eða fyrrverandi fjölskyldumeðlima.

„Á Landspítala gilda skýrar reglur um aðgangsheimildir starfsmanna að heilsufarsupplýsingum. Reglurnar eiga við um alla starfsmenn, hvort sem þeir eru aðstandendur sjúklinga eða ekki,“ segir Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á spítalanum.

Gildir sú meginregla að starfsmaður skal aðeins leita eftir upplýsingum sem hann þarf í tengslum við starf sitt, í þágu sjúklings eða í öðrum lögmæltum tilgangi. Í reglum spítalans er kveðið á um aðgangsstýringu og eftirlit með aðgengi starfsmanna að upplýsingum sem leita spítalans.

„Aðgangur heilbrigðisstarfsmanns að heilsufarsupplýsingum í sjúkraskrá er skráður hverju sinni þannig að hægt er að rekja hverjir hafa farið inn á hverja sjúkraskrá. Sérstök eftirlitsnefnd með notkun sjúkraskrár starfar við Landspítala og annast hún í samstarfi við upplýsingatæknideild eftirlit með því hvernig upplýsingar eru sóttar í tölvukerfi spítalans og hvort það sé í samræmi við gildandi aðgangsheimildir,“ segir Ólafur.

Brot á reglunum varða áminningu eða brottrekstri úr starfi auk kæru ef um lögbrot er að ræða. Persónuvernd hafa verið kynntar þessar reglur spítalans.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×