Lífið

Nýársspá Siggu Kling – Hrútur: Ástin og kynorkan allt í kring

Elsku sterki og fallegi hrúturinn minn. Þú ert að fara inn í alveg rosalega kraftmikið ár, ekki alltaf auðvelt en mundu það að af auðveldu verður ekki neitt.

Núna er þinn tími. Það var mikill kraftur í síðasta ári og margt að gerast en núna er að fara af stað mest spennandi tímabilið í lífsins kappakstri í mörg ár.

Ef þú hefur fundið fyrir leiða í vinnu, skóla eða sambandi er þetta ár uppgjörs og það mun leiða þig á þá braut sem þú vilt ganga í lífinu. Þetta sérðu ekki að fullu fyrr en þetta ár er að mestu liðið.

Margir atburðir munu koma þér á óvart næstu mánuði. Þú ferð í rússíbanaferð sem þú skipulagðir ekki sjálfur. Þú munt taka að þér spennandi verkefni og vekja athygli en vertu samt alveg rólegur, þú ert búinn að vinna þér inn mörg aukastig.

Það eru miklar tilfinningar í kortunum þínum, það er eins og þú finnir Ítalann í þér svo ástin og kynorkan verður allt í kringum þig og hversu skemmtilegt er það! Þú átt eftir að sýna öðrum hversu stórt hjarta þitt er og þú ert svo mikill leiðtogi, láttu engan segja þér neitt annað.

Það örlar á öfund í kringum þig en þú verður sterkari fyrir vikið og munt finna mikinn tilgang með þessu öllu saman. Þú færð góðan meðbyr frá fólki sem svo sannarlega elskar þig og þeir eru sko rúmlega miklu fleiri en þú heldur, elsku hrútur.

Gleðilegt nýtt ár elskan mín! Þín, Sigga Kling

Frægir hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir Pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Elton John söngvari, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×