Gæti verið betra að gera jafntefli en vinna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. janúar 2016 10:00 Guðjón Valur Sigurðsson og Vignir Svavarsson. Vísir/Valli
Það er allt undir í B-riðli á EM í handbolta í Póllandi eins og áður hefur komið fram. Ísland, Króatía, Noregur og Hvíta-Rússland eiga öll möguleika á að komast áfram í milliriðlakeppnina með fullt hús stiga. Öll lið geta líka fallið úr leik.Sjá einnig: Allir möguleikarnir í riðli Íslands Noregur og Hvíta-Rússland eigast við fyrst í dag og munu úrslit þess leiks hafa veruleg áhrif á möguleika Íslands. Sigri Hvíta-Rússland eru strákarnir okkar komnir áfram. En þeir eiga þá ekki möguleika á að fara áfram með nema tvö stig. Ísland getur aðeins farið áfram með fullt hús stiga ef Noregur vinnur Hvíta-Rússland. En það þýðir þá líka að tapi strákarnir gegn Króötum eru þeir úr leik.Hins vegar getur ótrúleg staða komið upp ef Noregur og Hvíta-Rússland gera jafntefli. Þá verður staðreyndin einfaldlega sú að það verður betra fyrir Ísland að gera jafntefli gegn Króatíu en að vinna leikinn.Hér er útskýringin:- Ef að Ísland vinnur Króatíu endar Ísland með 4 stig og Króatía er úr leik með 2 stig, enda Noregur og Hvíta-Rússland bæði með 3 stig. Ísland tekur með sér 2 stig í milliriðilinn, fyrir sigurinn á Noregi.- Ef að öll lið enda með þrjú stig ræður markatalan lokaúrslitum. Hvíta-Rússland er þá úr leik með lökustu markatöluna (-5). Ísland tekur með sér 3 stig í milliriðilinn, fyrir sigurinn á Noregi og jafnteflið gegn Króatíu.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira