Ferðasagan í heild sinni: Hafði ekki tíma fyrir söknuð Jóhann Óli Eiðsson skrifar 13. janúar 2016 23:15 Arna Ýr skömmu eftir að hún var krýnd Ungfrú Ísland. „
Ferðin til Kína gekk nokkuð vel miðað við að ég var að ferðast ein. Fyrst fór ég til Amsterdam og þar tók við ellefu tíma flug til Peking en þarf hófust vandræðin,“ segir Arna Ýr Jónsdóttir, ungfrú Ísland, á Snapchat reikningi keppninnar. Arna fór í desember til Kína til að keppa í keppninni Ungfrú heimur en það gekk ekki þrautalaust fyrir sig. Frá Peking átti Arna tengiflug til Sanya þar sem keppnin var haldin. Þar sem hún var að koma úr alþjóðaflugi og á leið í innanlandsflug var ekki hægt að bóka töskur hennar alla leið. Ungfrú Ísland stóð því á flugvelli í Kína, búin að stimpla sig út af alþjóðlega hluta hans og gat ekki farið þangað aftur til að sækja töskurnar sínar.Sjá einnig:Arna Ýr Jónsdóttir er Ungfrú Ísland 2015 „Ég vældi ábyggilega í hálftíma í öryggisverðinum um að hleypa mér aftur inn á svæðið og hann lét undan eftir mikið suð. Þá kom í ljós að aðeins tvær af töskunum þremur höfðu skilað sér,“ segir Arna. Þegar hér er komið við sögu eru minna en hálftími í flugið hennar. Það var úr að taskan myndi skila sér síðar. Hrakförunum á flugvellinum var hins vegar ekki lokið því þegar kom að því að fara í flugið til Sayna kom í ljós að það hafði farið á undan henni. „Ég var með konu til að hjálpa mér og þegar hún ætlar að innrita mig í flugið byrjar hún að rífast við starfsmanninn á fullu. Þau rifust og rifust og ég skildi ekki neitt. Það var þarna önnur stelpa í svipuðum vandræðum sem ég hleypti á undan mér.“ Þegar kom að því að finna nýtt flug fyrir þær fékk stúlkan á undan henni síðasta sætið í vélinni. „Klukkan var níu og næsta flug átti ekki að fara fyrr en átta. Ég stóð því eftir sársvöng eftir langt ferðalag. Facebook virkaði ekki og ekki Snapchat og ekki kortin mín heldur. Ég hreinlega vissi ekki hvað ég ætti að gera.“Arna Ýr á munaðarleysingjahælinu en henni fannst heimsóknin á það hápunktur ferðarinnar.mynd/aðsendSveiflaði ímynduðu sverði í dansprufu Á endanum skilaði Arna sér til Sanya en um leið og hún lenti tók við dagskrá. Keppendum var skipt niður í fjóra hópa sem áttu að vera saman í gegnum keppnina. Alls voru keppendur í mánuð í Kína og var rútínan að morgunmatur var klukkan sex og síðan tóku við æfingar fram að hádegismat. Eftir mat voru ýmsar myndatökur og undirbúningi sinnt og að kvöldmat loknum tóku æfingar við á ný fram að háttatíma. „Á öðrum degi var hæfileikakeppnin og prufur fyrir þjóðdansana sem átti að sýna á úrslitakvöldinu sjálfu. Í töskunni sem mig vantaði, og skilaði sér ekki fyrr en eftir tæpa viku, var meðal annars að finna alla skóna mína og förðunardótið auk búningsins sem ég ætlaði að klæðast í þjóðdansinum. Það var víkingagalli og honum fylgdi sverð sem mig skorti. Þannig ég stóð þarna eins og kjáni og sveiflaði höndunum og reyndi að útskýra að þarna ætti að vera sverð,“ segir Arna og lýsir atvikinu sem hinu vandræðalegasta. Önnur keppni sem stúlkurnar taka þátt í er íþróttakeppni. Fáar komast að í keppnina sjálfa og var því haldið píptest til að velja hverjar fengju að keppa. Í því ruglaðist Arna á rauðu mynstri í gólfteppinu og rauðri línu sem markaði línurnar sem þær áttu að fylgja. Hún var dæmd úr leik og fékk ekki að taka þátt í íþróttunum.Sjá einnig:Arna Ýr var furðu lostin: Horfðu stóru stundina í Ungfrú Ísland „Ég klúðraði því sem ég var sterkust í,“ segir Arna en hún hefur æft frjálsar íþróttir í sjö ár. Það var því ennþá sárara þegar í ljós kom að það var einmitt keppt í frjálsum. „Ég horfði á hinar stelpurnar hlaupa og keppa í langstökki og ég þurfti að fylgjast með. Það var ömurlegt því ég átti miklu betri árangur en þær allar. Þetta var eini dagurinn þarna úti sem mér leið illa.“ Í stað þess að taka þátt í íþróttunum heimsótti Arna kínverskt munaðarleysingjahæli fyrir fötluð börn sem hafa verið yfirgefin af foreldrum sínum. Hún lýsir meðal annars ungum dreng sem hafði fæðst án nefs og algerlega holgóma. Stúlkurnar stóðu fyrir söfnun handa börnunum. „Þetta er líklega það í allri keppninni sem mér þótti vænst um og ég mun muna eftir alla tíð.“ Meðal annarra hluta sem Arna nefnir er þegar hún fékk að smakka sex milljón króna túnfisks sashimi og níutíu mínútna sársaukafullri myndatöku með ungfrú heim árið 2014. „Þetta var mjög stíf dagskrá og það kom aldrei frídagur sem eftir á að hyggja er mjög gott. Áður en ég fór út kveið ég því mjög að vera frá öllum, fjölskyldunni og kærastanum mínum, í heilan mánuð en tíminn var svo fljótur að líða og það var svo margt að gera að maður hafði ekki tíma til að velta sér upp úr slíku. Mánuðurinn leið eins og vika. Ég lærði rosalega mikið af þessu og þetta er reynsla sem mun nýtast mér alla mína ævi.“
Tengdar fréttir Öll „snöppin“ frá keppendum í Ungfrú Ísland á einum stað Keppendurnir í Ungfrú Ísland eftirminnilega í gegn á samfélagsmiðlinum Snapchat fyrr í sumar. 29. ágúst 2015 15:35 Ísland í dag heimsækir Ungfrú Ísland Arna Ýr Jónsdóttir segist ekki hafa búist við að sigra, fyrr en hún var hvorki valin hæfileikastúlkan, né íþróttastúlkan. 7. september 2015 16:33 Kaldur hversdagsleikinn tekur við Mörgum þykir erfitt að koma sér í sína rútínu á nýjan leik eftir hátíðarnar. 6. janúar 2016 10:45 Tístarar fylgjast með Ungfrú Ísland: „Ég trúi ekki að þeir séu hættir að vera með Oroblu-stúlkuna“ Ungfrú Ísland fer fram í Hörpu þessa stundina. 5. september 2015 19:28 Mest lesið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum? Tíska og hönnun „Hann var of klár fyrir lífið“ Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign Lífið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Fleiri fréttir „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Sjá meira
Öll „snöppin“ frá keppendum í Ungfrú Ísland á einum stað Keppendurnir í Ungfrú Ísland eftirminnilega í gegn á samfélagsmiðlinum Snapchat fyrr í sumar. 29. ágúst 2015 15:35
Ísland í dag heimsækir Ungfrú Ísland Arna Ýr Jónsdóttir segist ekki hafa búist við að sigra, fyrr en hún var hvorki valin hæfileikastúlkan, né íþróttastúlkan. 7. september 2015 16:33
Kaldur hversdagsleikinn tekur við Mörgum þykir erfitt að koma sér í sína rútínu á nýjan leik eftir hátíðarnar. 6. janúar 2016 10:45
Tístarar fylgjast með Ungfrú Ísland: „Ég trúi ekki að þeir séu hættir að vera með Oroblu-stúlkuna“ Ungfrú Ísland fer fram í Hörpu þessa stundina. 5. september 2015 19:28