Lífið

Rupert Murdoch og Jerry Hall setja upp hringana

Vísir/Getty
Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch og leikkonan og fyrirsætan Jerry Hall ætla að ganga í það heilaga. Frá þessu var greint í tímamótadálki stórblaðsins the Times, sem er einmitt í eigu Murdochs. Þetta verður fjórða hjónaband Murdochs, sem er áttatíu og fjögurra ára gamall en það fyrsta hjá Jerry Hall.

Hún bjó með Mick Jagger úr Rolling Stones í mörg ár en þau gengu aldrei inn kirkjugólfið. Tilkynningin kom nokkuð á óvart en parið er sagt hafa farið að stinga saman nefjum síðasta sumar.

Talsmaður Murdochs sagði þau bæði í sjöunda himni og spennt fyrir framtíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×