Lífið

Bubbi búinn að missa þolinmæðina gagnvart Þórunni Antoníu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bubbi er ekki sáttur við Þórunni.
Bubbi er ekki sáttur við Þórunni. vísir/andri
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur ekki sagt sitt síðasta í deilu sinni við söngkonuna Þórunni Antoníu Magnúsdóttur sem hann telur þrá viðurkenningu, spila sig sem fórnarlamb og vilja völd.

Þetta má lesa úr þremur færslum sem Bubbi setti á Twitter í kvöld en þrátt fyrir að Þórunn sé ekki nafngreind í tístunum verður ekki um villst að hverjum Bubbi beinir skrifunum.

Deilur þeirra Bubba og Þórunnar Antoníu hafa verið fyrirferðamiklar um helgina allt frá því að söngkonan steig fram í helgarviðtali Fréttablaðsins og greindi frá vinnustaðaeinelti sem hún varð fyrir.

Sjá einnig viðtalið við Þórunni Antoníu: Mér fannst ég einskis virði

Þar nafngreindi hún ekki gerandann en Bubbi var fljótur að taka af allan vafa og gekkst við framkomunni á Facebook í gær. Þar sagðist hann hafa í tvígang beðið Þórunni afsökunar og þvertók fyrir að hafa lagt hana í einelti. Um hafi verið að ræða „misheppnaðan brandara“ og „asnalega athugasemd.“

Söngkonan lét sér fátt um afsökunarbeiðni Bubba finnast og hélt aftur á ritvöllinn. „Þegar einhver heldur áfram að stríða eftir að maður hefur sett mörk og ég sagði í einlægni að mér sárnaði þessi hegðun, það er ekkert annað en einelti,“ sagði Þórunn Antonía á Facebook í gær.

Sjá einnig: Þórunn Antonía um eineltið: „Ég er greinilega bara afskaplega viðkvæm og húmorslaus að finnast það ekki fyndið

Bubbi steig þá fram, aftur á Facebook, og reyndi að útskýra mál sitt betur. Í færslu sinni undirstrikaði Bubbi að hann hafi ekki lagt Þórunni í einelti og sagðist miður sín að hún hafi upplifað það þannig. Að endingu sagðist hann ekki ætla tjá sig meira um málið.

Dagur að kveldi komin ég ítreka aðeins afsökunarbeiðni mína ég mun ekki tjá mig um þetta meira og læt þetta duga ást og friður til allra

Posted by Bubbi Morthens on Saturday, 6 February 2016
Sjá einnig: Það var Bubbi sem lagði Þórunni Antoníu í einelti

 Eitthvað virðist þó hafa orðið til þess að Bubbi skipti um skoðun og settist við lyklaborðið. Á Twitter segir hann að búið sé að gengisfella orðið einelti. „Þú getur notað það sem vopn þú getur notað það sem snuð,“ segir Bubbi og fer ekki á milli mála að tístið er innlegg í umræðu síðasta sólarhrings.

Í tveimur öðrum tístum hjólar hann beint í Þórunni Antoníu, segir hana þrá viðurkenningu, spila sig sem fórnarlamb og „hafa ekki það sem til þarf.“ Þá eigi hún að viðurkenna að hún vilji völd. Tíst Bubba má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Mér fannst ég einskis virði

Þórunn Antonía Magnúsdóttir leggur sig fram við að fletta ofan af glansmyndunum, sem kaffæra samfélagið, á síðunni Góða systir. Henni finnst siðferðisleg skylda sín að tala um sligandi þunglyndið, óvæntan atvinnumissinn á meðgöng






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.