Blaðamaðurinn og hjúkrunarfræðingurinn Ragnheiður Eiríksdóttir vakti mikla athygli í síðustu viku þegar hún sagðist í Íslandi í dag ætla í svokallaða magabandsaðgerð og leyfa áhorfendum að fylgjast með ferlinu.
Magabandsaðgerð felst í því að sílíkonhring er komið fyrir utan um efsta hluta magans til að draga úr matarlyst og er orðin ein vinsælasta efnaskiptaaðgerðin í dag. Ragga vonast til að missa um 20-30 kíló með aðstoð magabandsins.
Aðgerðin var gerð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á laugardag. Ísland í dag fylgdist með og mun sýna innslagið í þættinum í kvöld.
„Ég er bara alveg slök,” sagði Ragga fyrir aðgerð.
„Ég borðaði pizzu í gærkvöldi og hélt mér myndi líða eitthvað undarlega að vera að borða síðustu alvöru máltíðina í mánuð, en nei,“ bætti hún við en eftir magabandsaðgerð verða sjúklingar að vera á fljótandi fæði í hálfan mánuð og maukuðu fæði í hálfan mánuð eftir það.
Ísland í dag er í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld og hefst kl. 18.55.
Ísland í dag: Ragga búin í magabandsaðgerðinni
Tengdar fréttir
Ragga Eiríks á leið í magabandsaðgerð: Snýst ekki um útlitið
Ragnheiður Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur og blaðamaður, segir að aðgerðin snúist fyrst og fremst um heilsufar sitt, fremur en útlit.