Lífið

Mastersnemar flétta saman námið og stuðning við Reykjadal

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Elmar Hallgríms Hallgrímsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, kennir námskeiðið Samvinna og árangur.
Elmar Hallgríms Hallgrímsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, kennir námskeiðið Samvinna og árangur. Vísir/Vilhelm
Hóparnir hafa skipulagt fjölmarga viðburði nú þegar, svo sem bíósýningu í Háskólabíói, fjöltefli í Smáralind, förðunarnámskeið og margt fleira,“ segir Elmar Hallgríms Hallgrímsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Á námskeiðinu Samvinna og árangur sem Hallgrímur stjórnar, vinna nemendur að fjáröflunarverkefni til stuðnings Reykjadal. Nemendum verður í upphafi skipt í fimm hópa en 30 meistaranemar eru í faginu og þeim er skipt upp í fimm smærri hópa.

Nóg að gera hjá nemendunum eins og sést. Vísir/Vilhelm
„Hóparnir hafa alveg frjálsar hendur í nálgun sinni að því að afla fjár fyrir Reykjadal. Hugmyndin að áfanganum kemur upphaflega frá Bandaríkjunum en ég tók sambærilegan áfanga þegar ég var þar í námi. Ég hef þó útfært hann með mínum hætti,“ segir Elmar.

„Hóparnir eru allir að vinna saman að þessu markmiði okkar, að safna fjármunum til að styðja við starfsemi Reykjadals. Það er afskaplega sárt til þess að hugsa að það er tveggja ára biðlisti til að komast að í Reykjadal og er það von okkar að við getum hjálpað til við fyrirhugaðar framkvæmdir á svæðinu með það að markmiði að stækka aðstöðuna,“ segir Elmar bjartsýnn á verkefni nemenda sinna.

Hverjum hópi í verkefninu verður úthlutað einum tengilið úr atvinnulífinu og er áætlað að hópurinn hitti tengiliðinn þrisvar til fjórum sinnum og fái þannig þá faglegu aðstoð og leiðbeiningar sem til þarf til að vinna verkefni af þessum toga.

„Tengiliðirnir koma til með að hjálpa nemendum við að útfæra hugmyndir sínar, en ég var einstaklega heppinn með þá tengiliði sem koma að verkefninu en það eru þær Ásthildur Otharsdóttir, Steinunn Bjarnadóttir, Margrét Sveinsdóttir, Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir og Ingunn Elín Sveinsdóttir,“ segir Elmar

Söfnunin hefst formlega í næstu viku og hafa nemendur nú þegar hafist handa við að skipuleggja fjölmarga viðburði. Hóparnir koma svo til með að auglýsa viðburði sína á Facebook-síðu átaksins en sú síða verður opnuð von bráðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×