Góður leikur sem ætti að vera frábær Samúel Karl Ólason skrifar 22. febrúar 2016 09:15 Hermenn XCom beita öllum brögðum til að hafa betur gegn Advent.
Geimverur hafa tekið völdin á jörðinni. Meirihluti íbúa virðast heilaþvegnir en fámennur hópar víðs vegar um heiminn berjast gegn geimverunum sem kallast Advent. XCom 2 setur spilara í spor andspyrnunnar sem berst gegn mun sterkari andstæðingi. Leikurinn er mjög erfiður og má fátt klikka í byrjun. XCom 2 er mjög góður leikur í grunninn. Enemy Unkown er með betri leikjum, sem undirritaður hefur spilað og XCom 2 bætir við EU að mörgu leyti, en eins og staðan er í dag, er hann ekki frábær. Hann ætti að vera frábær. Að mörgu leyti byggir XCom 2 á velgengni forvera síns og er ekki hægt að segja annað en að leikurinn sé góður. Tæknilegir gallar koma þó hins vegar í veg fyrir að XCom 2 sé frábær. Ljósið í myrkrinu er þó að Firaxis munu að öllum líkindum gefa út plástra fyrir leikinn sem og aukapakka.Saga leiksins gerist á þann veg að tuttugu ár eru liðin frá innrásinni og varnarbaráttan sem einkenndi XCom Enemy Unknown tapaðist og geimverurnar unnu. Nú er andspyrnunnar að standa í hárinu á geimverunum og reynist nauðsynlegt að endurreisa XCom verkefnið. Hann skiptist í tvo hluta eins og fyrri leikurinn, þar sem annar hlutinn fer í að rannsaka og byggja ný vopn, safna birgðum og upplýsingum og fleira á stóru hnattkorti. Hinn hluti leiksins snýr að bardögum. Undirritaður byrjaði leikinn vongóður. Ég hafði margsinnis spilað Enemy Unknown og hafði sérstaklega hitað upp fyrir XCom 2. Ég ætti eftir að eiga auðvelt með að fara í gegnum þennan leik. Eftir nokkrar klukkustundir slökkti ég hins vegar á leiknum þegar nánast allir hermenn mínir voru dauðir, særðir eða í ruglinu sálfræðilega (Shellshocked). Næsta dag prófaði ég aftur, kyngdi stoltinu og lækkaði erfiðleikastigið, svo ég kæmist nú eitthvað áfram í leiknum. Byrjunin skiptir miklu máli og er gríðarlega mikið sem gengur á fyrstu klukkutíma leiksins.Í bardögum þarf að klára flest borð innan ákveðins og þröngs tímaramma, sem gefur manni ekki mikið svigrúm í byrjun leiks til að beita þeirri taktík sem að XCom á að byggja á. Margsinnis reyndist nauðsynlegt að spretta með hermennina eins og þeir komust og vona að þeir yrðu ekki skotnir. Það lagast þó að miklu leyti seinna í leiknum þegar hermennirnir eru komnir með betri vopn og brynjur.Leiðinleg bið Í hverjum mánuði í leiknum fær spilari ákveðið magn af birgðum eftir því hve stórt svæði heimsins hann hefur opnað. Þær birgðir þarf þó að sækja á heimskortinu. Leiðinlega mikill tími fer í að horfa á geimskip XCom taka á loft, fljúga höktandi um kortið og lenda á nýjum stað til þess að láta klukkuna ganga áfram á meðan til dæmis birgðum er safnað og tekur það þrjá daga. Oftar en ekki er þó ekki hægt að klára það í einni tilraun, þar sem eitthvað kemur upp á. Þá þarf að horfa aftur á skipið taka á loft, fljúga höktandi um kortið og lenda. Fara í gegnum eitt borð og fljúga aftur til baka til að sækja birgðirnar og vona að það gangi upp án þess að nauðsynlegt reynist að taka aftur á loft. Bardagar leiksins eru „turn based“ þar sem spilarar raða upp köllum sínum og svo gerir tölvan. Stundum líður óeðlilega mikill tími á meðan tölvan gerir og maður sér jafnvel ekki hvað hún gerði eða hvort geimverurnar hittu hermennina. Nú þegar hafa þó verið gerðir moddar, sem auðvelt er að nálgast, en þeir laga-ish marga af göllum leiksins.Hægt er að breyta útliti hermanna mun meira en áður sem er skemmtilegt og auðveldara verður að þekkja þá í hita leiksins. Þeir geta verið með tattú og jafnvel vindil. Þrátt fyrir ófáa galla er XCom góður og skemmtilegur leikur og ég skemmti mér vel yfir honum. Erfiðleikastig hans gerir hann meira spennandi en forvera sinn og tilfinningin er frábær þegar borðin heppnast fullkomlega. Eins fylgir því mikil reiði þegar geimverurnar sigra og tekst jafnvel að drepa uppáhalds hermanninn þinn. Gallarnir verða líklegast lagaðir og það sem meira er, þá hefur Firaxis gert svokölluðum moddurum auðveldara um vik. XCom 2 er, eins og áður segir, góður leikur. Hann verður líklega frábær á endanum.
Leikjadómar Leikjavísir Tengdar fréttir Erfið en mjúk fyrstu skref Master Chief á Xbox One Frá því að Halo: Combat Evolved kom út fyrir 14 árum hefur Halo-leikjaröðin átt gríðarlegri velgengni að fagna. 6. janúar 2016 11:00 Lara Croft hefur aldrei litið betur út Rise of the Tomb Raider er stór skemmtilegur leikur sem lítur frábærlega út á PC. 4. febrúar 2016 09:30 Biðin eftir góðum handboltaleik heldur áfram Framleiðendurnir Handball 16 fá þó aukastig fyrir viðleitnina, en markaðurinn fyrir handboltaleiki er væntanlega ekki beysinn. Íslenskir leikmenn eru á sínum stað. 25. janúar 2016 15:30 Haldið í hefðir Homeworld Homeworld: Deserts of Kharak, tekst að vera nýstárlegur og í senn halda í uppruna sinn. 11. febrúar 2016 09:15 Eins og endalaus hasarmynd Það er nánast ómögulegt að taka Just Cause 3 alvarlega en það er svo sem ekki ætlast til þess. 7. janúar 2016 10:00 Leikirnir sem beðið er eftir Óhætt er að segja að árið lofi góðu og eru margir efnilegir leikir á leiðinni. 15. janúar 2016 08:45 Mest lesið Flytja frá Bandaríkjunum eftir sigur Trump Lífið Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Tíska og hönnun Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Bíó og sjónvarp Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Bíó og sjónvarp Davíð Lúther og Linda selja sælureitinn með gullfiskum Lífið Átta ár án áfengis og fíkniefna Lífið Dularfull tíst Dylans vekja furðu Lífið Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Lífið Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Tónlist Gummi kíró kom Elísabetu til bjargar Jól Fleiri fréttir GameTíví: Skoða gjörbreyttan Warzone Dragon Age Veilguard: Fimmtán ára ævintýri lýkur PlayStation 5 Pro: Eina leiðin til að spila, ef þú tímir því Sverrir Bergmann snýr aftur í GameTíví GameTíví: Berjast gegn hjörðum uppvakninga Horizon Zero Dawn uppfærður: Besta tækifærið til að stökkva í sögu Aloy CCP kynnir nýjan leik til sögunnar COD Black Ops 6: Myrkraverkin hafa sjaldan verið betri Steindi og Gunnar Nelson spila með GameTíví Íslendingar berjast hjá GameTíví GameTíví: Koma vetrarbrautinni til bjargar í Space Marine Until Dawn: Flott endurgerð á hryllilegum leik GameTíví: Jökull leiðir strákana til sigurs Sjá meira
Erfið en mjúk fyrstu skref Master Chief á Xbox One Frá því að Halo: Combat Evolved kom út fyrir 14 árum hefur Halo-leikjaröðin átt gríðarlegri velgengni að fagna. 6. janúar 2016 11:00
Lara Croft hefur aldrei litið betur út Rise of the Tomb Raider er stór skemmtilegur leikur sem lítur frábærlega út á PC. 4. febrúar 2016 09:30
Biðin eftir góðum handboltaleik heldur áfram Framleiðendurnir Handball 16 fá þó aukastig fyrir viðleitnina, en markaðurinn fyrir handboltaleiki er væntanlega ekki beysinn. Íslenskir leikmenn eru á sínum stað. 25. janúar 2016 15:30
Haldið í hefðir Homeworld Homeworld: Deserts of Kharak, tekst að vera nýstárlegur og í senn halda í uppruna sinn. 11. febrúar 2016 09:15
Eins og endalaus hasarmynd Það er nánast ómögulegt að taka Just Cause 3 alvarlega en það er svo sem ekki ætlast til þess. 7. janúar 2016 10:00
Leikirnir sem beðið er eftir Óhætt er að segja að árið lofi góðu og eru margir efnilegir leikir á leiðinni. 15. janúar 2016 08:45