Lífið

Þegar heimurinn áttaði sig á því að Beyoncé væri svört

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndbandið hefur fengið sterk viðbrögð.
Myndbandið hefur fengið sterk viðbrögð.
Söngkonan Beyoncé sendi frá sér nýtt myndband við lagið Formation í daginn fyrir Superbowl leikinn. 

Myndbandið hefur vakið gríðarlega athygli og er það hápólitísk þar sem skotið er föstum skotum á meðferð lögreglunnar á blökkumönnum í Bandaríkjunum.

Hún frumflutti lagið í hálfleik á Superbowl en um er að ræða hennar fyrsta lag frá því hún sendi frá sér sína síðustu plötu, Beyoncé, árið 2014.

Grínþátturinn Saturday Night Live gerði sér mat úr nýja myndbandinu þar sem sjá mátti þegar fólk í Bandaríkjunum áttaði sig á því að söngkonan væri í raun svört. Mjög fyndið atriði sem sjá má hér að neðan. Einnig má sjá umrætt tónlistarmyndband Beyoncé.

"The Day Beyoncé Turned Black"

When Beyoncé dropped Formation, the internet lost its collective mind — some more than others.

Posted by Saturday Night Live on 14. febrúar 2016
Formation

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×