Lífið

Hvað voru Manúela og Nick Lachey að gera saman í Playboy höllinni?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það var mikið fjör hjá þeim vinkonunum.
Það var mikið fjör hjá þeim vinkonunum. vísir/snapchat
Manúela Ósk Harðardóttir hefur heldur betur slegið í gegn á Snapchat undanfarið og náði það hámarki í síðustu viku þegar hún fór á stefnumót með Snorra Björnssyni, ljósmyndari og einnig Snapchat-stjarna.

Þeir sem fylgjast með Manúelu á Snapchat (manuelaosk) hafa væntanlega tekið eftir því að hún er flogin út til Los Angeles og skellti sér í partý í Playboy-höllinni í gærkvöldi með vinkonu sinni Ragnheiði Ragnarsdóttur, sundkonu. Þar hittu þær meðal annars Nick Lachey, sem var áður í hljómsveitinni 98 Degrees, og fyrrum eiginmaður Jessica Simpson, og virtist fara vel á með Manúelu og Nick.

Einnig mátti sjá Michael Buffer á svæðinu sem er án efa frægasti kynnir heims. Hann er iðulega á stærstu boxbardögunum og lætur sín frægu orð flakka; Let's Get Ready To Rumble. Með honum var einnig bróðir hans Bruce Buffer en hann er aðalkynnirinn í UFC.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.