Bíó og sjónvarp

Ísland Got Talent: Þátttakan liður í endurhæfingu eftir taugalömun

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
„Ég er held ég eins tilbúin og hægt er,“ sagði hin 24 ára gamla Thelma Dögg Guðmunsen skömmu áður en hún steig á svið og söng rólega píanóútgáfu af laginu Brokenheart með Karmin. Hún var að vísu ekki algerlega tilbúin þar sem hún fór úr skónum sínum á miðju sviðinu áður en atriði hennar hófst.

Saga Thelmu er örlítið öðruvísi en margra annara sem taka þátt í keppninni en í gegnum tíðina hefur hún búið víða og tíðir flutningar haft áhrif á líf hennar. Fyrir ári lenti hún í því að veikjast og fá taugalömun og hefur hún verið í endurhæfingu eftir það.

„Það er í raun stór ástæða fyrir því að ég er hér í kvöld. Ég ætla að stíga aðeins út fyrir þægindarammann,“ sagði Thelma. „Veikindin hafa fengið mann aðeins til að hugsa um hvað lífið hefur upp á að bjóða. Maður á að vera hamingjusamur og gera það sem maður hefur gaman af að gera.“

Flutning Thelmu og viðbrögð dómaranna má sjá hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.