Lífið

Manúela um stefnumótið: „Hann reyndi ekki neitt, hann tók ekki skrefið“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Manúela skemmti sér vel í gær.
Manúela skemmti sér vel í gær. vísir
„Þetta var mjög skemmtilegt,“ segir Snapchat-stjarnan Manúela Ósk Harðardóttir, í útvarpsþættinum Brennslan á FM957, en hún fór á stefnumót ársins í gærkvöldi með Snorra Björns. Þau borðuðu saman á Sushi Samba og deildu bæði atburðarásinni á Snapchat.

„Mér fannst reyndar frekar illa gert af honum Snorra að tala um að ég væri allan tímann í símanum. Það var alls ekki þannig, ég var einmitt það lítið í símanum að ég náði ekki einu sinni að horfa á „story-ið“ hjá honum.“

Manúela var valin ungfrú Ísland árið 2002 og hefur verið landsþekkt síðan.

„Þrátt fyrir mjög mikinn aldursmun þá náðum við mjög vel saman,“ segir Manúela. Þá benti Hjörvar á að þetta væri nú ekki svo mikill aldursmunur.

„Hjörvar, hann er mitt á milli mín og sonar míns. Þú ert kannski vanur svona aldursmun, ég veit það ekki.“

Manúela segir að Snorri sé strax farinn að tala um eitthvað bónorð.

„Hann er mikil tilfinningavera. Ég byrjaði að horfa á Snapchat-ið hans á dögunum og fannst hann eitthvað svo sætur og skemmtilegur. Þá setti ég inn tíst og átti ekki von á þessum fljótu viðbrögðum frá honum.“

Manúela skellti sér á nammibarinn undir lok stefnumótsins í Hagkaup í Garðabæ. Hér að neðan má hlusta á viðtalið við hana frá því í morgun. Manúela gaf Snorra koss á kinnina og fór síðan heim til sín. 

„Hann reyndi ekkert neitt, hann tók ekk skrefið.“

Umræðan á Twitter

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.