Lífið

Greina frá því að Kim Kardashian sé búin að sækja um skilnað

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þau giftu sig í maí árið 2014
Þau giftu sig í maí árið 2014
Fjölmiðlar vestanhafs greina nú frá því að Kim Kardashian sé búin að sækja um skilnað við eiginmann sinn Kanye WestWest hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum undanfarna daga og sé Kim búin að fá nóg. 

Kanye hefur talað um að hann sé gjaldþrota á Twitter og hefur hann beðið marga þekkta auðkýfinga um peninga á síðustu dögum, þar á meðal Mark Zuckerberg stofnanda Facebook

Talað er um að Kim sé nú þegar búin að afhenda honum skilnaðarpappírana og fer hún fram á fullt forræði yfir börnunum þeirra, þeim North West og Saint West en sá síðarnefndi fæddist í lok ársins 2015. 

Á forsíðum slúðurtímarita á borð við In Touch og Star er greint frá skilnaðinum. 

 


Tengdar fréttir

Kanye West segist skulda milljarða

Kanye West er einn þekktasti tónlistarmaðurinn í heiminum og hefur hann sett sinn svip á rappsenuna undanfarinn áratug og rúmlega það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.