Lífið

Boys II men á leiðinni til landsins?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það væri gaman að fá þessa sveit til landsins.
Það væri gaman að fá þessa sveit til landsins. vísir
Á Facebook má finna síðu þar sem fram kemur að R&B hljómsveitin sé á leiðinni til landsins og muni halda tónleika hér þann 28. ágúst.

Á Facebook-síðunni segir að Boyz II Men sé söluhæsta R&B hljómsveit allra tíma. Nánar verði tilkynnt um tónleikastað á næstunni.

Strákarnir í Brennslunni á FM957 ræddu þetta mál í morgun en fréttastofa hefur reynt að ná sambandi við stjórnendur síðunnar án árangurs.

Hér má hlusta á nokkur lög með sveitinni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×