Lífið

Lögreglan á villigötum í rannsókn morðmáls

Jakob Bjarnar skrifar
Rannsóknardeild Lögreglunnar á Norðurlandi eystra blandaði sér óvænt í vangaveltur á Facebook um hver væri morðinginn í Ófærð.

Verulegar umræður voru um þetta atriði í gær á samfélagsmiðlunum en tveir lokaþættir sjónvarpsþáttaraðarinnar voru sýndir í gærkvöldi.

Tilgáta rannsóknardeildar Lögreglunnar á Norðurlandi eystra gengur út á að hauslausa líkið, „sem hefur nú fundist í tvígang, sé alls ekki téður Geirmundur. Sé tilgátan rétt bíður það svo á móti upp á athyglisverðan vinkil á morðinu á Hrafni bæjarstjóra. Hvað haldið þið? ‪#‎máliðertilrannsóknar ‪#‎ófærð‪#‎bíðumspennteftirkvöldinu

Sigurjón Kjartansson, einn handritshöfunda, hefur biðlað til Íslendinga um að gaspra ekki um hvernig í pottinn er búið með morðmálin á hinum óræða stað sem er sögusvið Ófærðar. Þetta er vegna þess að enn á eftir að sýna þættina erlendis og netið virðir engin landamæri.

Vísir vonar ekki sé neinu spillt né of mikið sagt þegar það tilkynnist hér með að rannsóknardeild lögreglunnar á Norðurlandi eystra reyndist á algjörum villigötum með kenningar sínar.

Rannsóknardeild Lögreglunnar á Norðurlandi eystra hefur sett fram þá tilgátu að hauslausa líkið, sem hefur nú fundist í...

Posted by Lögreglan á Norðurlandi eystra on 21. febrúar 2016





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.