Páskaterta að hætti Evu Laufeyjar Stefán Árni Pálsson skrifar 18. mars 2016 09:27 visir.is/evalaufey
SúkkulaðidraumurSúkkulaðibotnar3 bollar hveiti (Amerísk mæling, 1 bolli = 2,4 dl)2 bollar sykur3 egg2 bollar AB mjólk1 bolli bragðdauf olía5 msk kakó2 tsk lyftiduft1 tsk matarsódi2 tsk vanilludropar eða sykur Aðferð: Blandið öllum hráefnum saman í skál, hrærið í nokkrar mínútur eða þar til deigið verður slétt og fínt. Hellið deiginu í smurð bökunarform og bakið við 180°C í 25 - 30 mínútur. Það er gott ráð að stinga hníf í kökuna eftir 25 mínútur og ef hnífurinn kemur hreinn upp úr er kakan klár en annars þarf hún lengri tíma. Ofnar eru auðvitað eins misjafnir eins og þeir eru margir. Það er mikilvægt að leyfa kökunni að kólna alveg áður en hún er skreytt með kreminu.Vanillu Frosting 4 eggjahvítur2 1/2 dl sykur1 tsk vanillusykur Aðferð: Þeytið eggjahvítur og sykur saman þar til froða fer að myndast. Færið skálina, setjið yfir sjóðandi vatn og hrærið þar til blandan byrjar að þykkna og hitna. Takið þá skálina frá vatninu og hrærið áfram í hrærivélinni, bætið vanillu saman við á því stigi. Hrærið áfram þar til kremið kólnar og verður orðið stíft. (Alveg eins og með marengs, þið eigið að geta hvolft skálinni án þess að kremið hreyfist) Ég setti nokkra dropa af gulum matarlit út í kremið í lokin, mér finnst gel matarlitirnir frá Wilton lang bestir. Mæli með þeim. Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2.
Eva Laufey Kökur og tertur Uppskriftir Mest lesið „Ég ætla ekki að þegja lengur“ Lífið Anna Lilja nældi sér í fjárfesti Lífið Íslenskar stjörnur flykkjast í sólina Lífið Borðar ekkert nema kjöt, egg og smjör Lífið Ramsay snæddi á Nebraska og lenti í árekstri á Edition Lífið Gagnrýnir varaforsetaefni Trump fyrir ummæli um barnlausar konur Lífið Chalamet syngur sem Bob Dylan í nýrri stiklu Lífið Græðgi meðleikonu hafi skemmt endurkomuna Lífið Helvítis kokkurinn: Heilög helvítis þrenna Lífið „Smávægileg martröð“ að vinna fyrir Olsen systurnar Lífið Fleiri fréttir Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Vænir, grænir og girnilegir matcha-molar að hætti Jönu Sjá meira