Lífið

Ákveðin ung stúlka er klár fyrir stefnumót með Harry Styles: Þarf bara eitt pund og pabbinn má gista

Stefán Árni Pálsson skrifar
Amelia veit hvað hún vill.
Amelia veit hvað hún vill. vísir
Amelia er lítil ung stúlka sem á einn draum og það er að fara á stefnumót með Harry Styles úr One Direction.

Stelpan er frá Hemel Hempstead í Englandi og lætur sig dreyma í þessu myndband sem faðir hennar setti á internetið. Þar ræða þau feðginin um komandi stefnumót við draumaprinsinn og á sama tíma er hún að taka sig til fyrir kvöldið.

Pabbinn vill nú fá að hitta Styles áður en þau fara á stefnumót en Amelia var nú ekkert sérstaklega hrifin af því. Hún bað pabba sinn um eitt pund til að taka með sér og sagði að það væri kannski í lagi að hann myndi gista á sófanum heima hjá Styles. Þetta myndband er gjörsamlega stórkostlegt og sprengir alla krúttaskala.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×