Körfubolti

Valsmenn komnir í 2-0 en Skagamenn jöfnuðu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Benedikt Blöndal skoraði 14 stig fyrir Valsliðið í kvöld.
Benedikt Blöndal skoraði 14 stig fyrir Valsliðið í kvöld. Vísir/Vilhelm
Undanúrslit úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta héldu áfram í kvöld en þó fór fram önnur viðureignin í báðum einvígunum.

Valsmenn eru komnir í góð mál eftir sigur í Borgarnesi en þeir geta tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu með sigri á heimavelli sínum í næsta leik.

Fjölnismenn áttu möguleika á því að komast í 2-0 en urðu að sætta sig við naumt tap á móti ÍA á Akranesi.

Skagamenn náðu mest fjórtán stiga forskoti í leiknum og héldu síðan út í lokin þegar Fjölnismenn sóttu að þeim. Fannar Freyr Helgason var frábær í liði ÍA í kvöld.

Þór frá Akureyri hefur þegar unnið sér sæti í Domino´s deild karla á næsta tímabili en hin fjögur liðin keppa um hitt lausa sætið í þessari úrslitakeppni.



Úrslit og stigaskor leikmanna í leikjum kvöldsins:



Skallagrímur-Valur 83-87 (18-28, 26-17, 27-21, 12-21)

Skallagrímur: Jean Rony Cadet 28/14 fráköst, Sigtryggur Arnar Björnsson 24/4 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 12, Davíð Guðmundsson 6, Hamid Dicko 6/5 stoðsendingar, Atli Aðalsteinsson 4, Davíð Ásgeirsson 3.

Valur: Jamie Jamil Stewart Jr. 30/5 fráköst, Benedikt Blöndal 14/4 fráköst, Illugi Auðunsson 11, Þorgeir Kristinn Blöndal 11/8 fráköst/5 stoðsendingar, Leifur Steinn Arnason 8/5 fráköst, Friðrik Þjálfi Stefánsson 6/7 fráköst, Illugi Steingrímsson 4/11 fráköst, Sigurður Dagur Sturluson 3/6 fráköst.

Staðan er 2-0 fyrir Val.



ÍA-Fjölnir 71-69 (18-14, 17-9, 17-20, 19-26)

ÍA: Fannar Freyr Helgason 22/10 fráköst, Sean Wesley Tate 16/5 fráköst/6 stoðsendingar, Jón Orri Kristjánsson 8/12 fráköst, Steinar Aronsson 8, Magnús Bjarki Guðmundsson 7, Áskell Jónsson 6/4 fráköst, Erlendur Þór Ottesen 4/5 fráköst.

Fjölnir: Collin Anthony Pryor 16/14 fráköst, Þorgeir Freyr Gíslason 13/7 fráköst, Róbert Sigurðsson 12/4 fráköst/5 stoðsendingar, Garðar Sveinbjörnsson 7/7 fráköst, Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson 6, Valur Sigurðsson 6, Sindri Már Kárason 4, Guðjón Ágúst Guðjónsson 2, Bergþór Ægir Ríkharðsson 2/4 fráköst, Alexander Þór Hafþórsson 1.

Staðan er 1-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×