Íslenski boltinn

Arna Dís tryggði Blikum fimmta sigurinn í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Fanndís skoraði fyrra mark Blika í dag.
Fanndís skoraði fyrra mark Blika í dag. vísir/auðunn níelsson
Arna Dís Arnþórsdóttir tryggði Breiðablik sigur á Fylki í A-deild Lengjubikars kvenna, en lokatölur urðu 2-1 sigur Íslandsmeistaranna.

Landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir kom Breiðablik yfir á fjórtándu mínútu, en önnur landsliðskona, Berglind Björg Þorvalsdóttur, jafnaði fyrir Fylki á 30. mínútu.

Þannig stóðu leikar í hálfleik og allt þangað til á 77. mínútu þegar hin nítján ára Arna Dís Arnþórsdóttir tryggði Breiðablik fimmta sigurinn í fimm leikjum.

Íslandsmeistarar Breiðabliks eru á toppnum með fimmtán stig, fullt hús stiga, en Fylkir er með þrjú stig eftir fyrstu fimm leikina.

Úrslit og markaskor er fengið frá úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×