Aprílblað Glamour er komið út og er óhætt að segja að rómantíkin svífi yfir vötnum í þessu tölublaði.
Forsíðuna prýðir listakonan, leikkonan og fyrirsætan India Salvör Menuez en inn í blaðinu má finna ævintýralegan myndaþátt eftir ljósmyndarann Önnu Pálma ásamt ítarlegu viðtali við listakonuna sem er að verða meira og meira áberandi í lista-og tískuheiminum Vestanhafs.
Nú er árstími brúðkaupa að ganga í garð en í tölublaðinu fá finna 25 blaðsíðna kafla sem er tileinkaður stóra deginum. Allt sem maður þarf að vita um brúðkaup - veislan, hárið, förðunin, skreytingar, gjafir og auðvitað dressin.
Snyrtivörurnar, trendina, ferðalögin og fróðleikur er svo á sínum stað í blaðinu að venju!
Ekki missa af Aprílblaðinu okkar - en allir áskrifendur okkar fá glaðning heim með sínu blaði í tilefni að ársafmælinu okkar! Ekki örvænta - því allir sem koma inn í áskrift í Apríl fá líka gjöf! Vertu með okkur - tryggðu þér í áskrift hér, á glamour@glamour.is eða í síma 512 5550.
Ævintýri og rómantík í apríl

Tengdar fréttir

Íslensk fyrirsæta í auglýsingaherferð Miu Miu
Indía Salvör Menuez í einu stærsta fyrirsætuverkefni sínu til þessa