Greta í vandræðum á fyrstu æfingu í Globen Stefán Árni Pálsson skrifar 3. maí 2016 14:17
Fyrsta æfing Gretu Salóme fór fram á stóra sviðinu í keppnishöllinni Globen í Stokkhólmi í dag. Var það almenn skoðun áhorfenda, sem fylgdust með æfingunni á skjám í keppnishöllinni, að byrjunarörðugleikar hefðu verið á íslenska atriðinu. Greta tók þrjú rennsli. Fyrsta og annað gengu ekki vel en Greta náði sér betur á strik í því þriðja. Orðrómur var uppi um að Gretu-teymið ætlaði að nýta nýja tækni á sviðinu í Globen. Svo reyndist ekki vera og er sviðsetningin svipuð atriðinu sem landsmenn sáu í Söngvakeppninni hér heima. Áhorfendur sögðu myndvinnslu hjá sænska sjónvarpinu geta verið betri í íslenska atriðinu. Einn blaðamaður í höllinni orðaði það þannig að víð skot eyðilegðu eiginlega alveg heildarútlit atriðsins. Engar myndatökur voru leyfðar á æfingunni í dag en sem fyrr segir fylgdust gestir með því sem fram fór á skjám í keppnishöllinni. Íslenski hópurinn kom til Svíþjóðar í dag en Greta stígur á svið á þriðjudaginn. Hún er númer sextán í röðinni. Hér að neðan má sjá smá brot frá æfingunni í dag
Eurovision Mest lesið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Matur Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Fleiri fréttir Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Ljúffengur sumarréttur með burrata osti Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Falska söngkonan á leið í meðferð Myndaveisla: Héldu upp á tíu ára afmælið í Guðmundarlundi Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Tónleikaferðalagið í vaskinn eftir ummæli um Trump Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Fékk hjálp úr óvæntri átt í miðjum skilnaði Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lengi lifir í gömlum glæðum Rúrik og Pétur Jóhann þeir frægustu sem hún hefur hitt Hrikalega spennandi grillkeppni á Kótilettunni Logi Bergmann var tekinn New York Times lofar Snertingu Með lykilinn að því hvernig á að gera eftirhermu af Íslending Stjörnum prýdd dómnefnd í Ungfrú Ísland Sumarlegur fiskréttur á pönnu Stjörnulífið: Heimir Hallgríms ástfanginn í Suður Frakklandi „Hann er fullkominn eins og hann er“ „Ég var dómharður og ömurlegur gæi“ „Ég var með beinflísar stingandi inn í mænuna mína“ Richard Simmons látinn Shannen Doherty látin Dægrastytting í heimsfaraldri uppskar óvænta frægð Veiðiþættirnir Allt í keng: Nýi skólinn hittir gamla skólann Sjá meira