Sport

Anton Sveinn komst í úrslit

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Glæsilegur árangur hjá Antoni Sveini.
Glæsilegur árangur hjá Antoni Sveini. vísir/valli
Anton Sveinn McKee gerði sér lítið fyrir og komst í úrslit á 100 metra bringusundi á Evrópumeistaramótinu í 50 metra laug sem fram fer í London.

Anton synti fyrra undanúrslitasundið í kvöld og kom þriðji í mark á 1:00,98 mínútum. Það varð sjöundi besti tíminn í heildina og komst Anton því í úrslitasundið.

Anton Sveinn var öruggur inn í úrslitin því áttundi og síðasti maður inn var Svisslendingurinn Yannick Kaeser sem synti á tímanum 1:01,13.

Glæsilegur árangur hjá Antoni sem syndir til úrslita í 100 metra bringusundi á morgun.

Fyrr í kvöld komst Bryndís Rún Hansen ekki í úrslit í 50 metra flugsundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×