Lífið

Måns mætti nakinn á svið

Samúel Karl Ólason skrifar
Måns Zelmerlöw, mætti nakinn á svið í Globen í Stokkhólmi nú í kvöld. Það gerði hann þegar Petra Mede var að tala um Ivan frá Hvíta Rússlandi að loknum flutningi hans. Hún sagði að sá orðrómur hefði verið á kreiki að Ivan ætlaði sér að vera nakinn á sviði umkringdur úlfum.

Það væri þó gegn reglum Eurovision.

Í þeim töluðu orðum kom Måns á svið nakinn á svifbretti, með úlfstuskudýr fyrir kynfærum sínum. Þegar hann heyrði að nekt væri gegn reglunum sneri hann vonsvikinn við. Hægt er að sjá atvikið hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×