Lífið

Tónlistargagnrýnandi Fréttablaðsins: „Greta hefur ekki nógu öfluga rödd“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Greta á æfingu í Globen.
Greta á æfingu í Globen. vísir/Andres Putting
Greta Salóme flutti lag sitt Hear Them Calling á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision í Globen í Stokkhólmi í kvöld. Greta steig sextánda á svið, tala sem Íslendingar þekkja ágætlega úr söngvakeppninni, og gekk flutningurinn að því ert virtist ágætlega að mati netverja.

Íslenskir Twitter-notendur eru afar virkir á Twitter undir merkinu #12stig og sitt sýnist hverjum um lögin átján sem kepptu í kvöld. Jónas Sen, tónlistargagnrýnandi Fréttablaðsins, er einn þeirra. 

Spennandi verður að sjá hvort íslenska lagið komist í úrslit sem fram fara á laugardagskvöldið. Jónas virðist ekki sérstaklega bjartsýnn að loknum flutningi Gretu Salóme, Bubbi Morthens tók undir með Jónasi.

Frekari viðbrögð Íslendinga á Twitter má lesa hér.

 

Uppfært klukkan 21:10

Íslenska lagið komst því miður ekki áfram og kom það Jónasi ekki í opna skjöldu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×