Skírðu kindina Pirrulínu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. maí 2016 09:15 Hermann og Sandra Sif með heimilistíkina Ösku á milli sín. Vísir/Hulda
Sandra Sif, átta ára, og Hermann, fimm ára, eru fjörugir krakkar sem rétt mega vera að því að stilla sér upp fyrir ljósmyndara Fréttablaðsins. Hermann er að koma úr kvikmyndatöku og Sandra Sif er að fara á vorhátíð í skólanum. En bæði eru nýlega komin úr ferðalagi með foreldrum sínum austur í Öræfi, sem er sveit við rætur Vatnajökuls. Skyldu þau fara oft upp í sveit? Sandra: Já, við förum stundum í Öræfin, að Hofi og Hnappavöllum. Hermann: Við fórum núna og kíktum á sauðburðinn. Hjálpuðuð þið til við búskapinn? Sandra: Já, ég fékk að hjálpa til að gefa kindunum hey í fjárhúsinu hjá Adda bónda. Ég fékk líka að fylgjast með ánum bera. Svo hjálpaði ég líka við að smala lambánum sem voru úti á túni í gott skjól fyrir ofan hlöðu áður en nóttin kom. Hermann: Það var ein kind sem var að reyna að stanga mig og passa lambið sitt. Við skírðum hana Pirrulínu, af því hún var svo pirruð á okkur og vildi ekki hafa okkur nálægt sér. Lentuð þið í fleiri ævintýrum? Sandra Sif: Við fórum með pabba að veiða silung. Það var mjög skemmtilegt. Svo fór ég með mömmu og ömmu í fjallgöngu upp að einum helli sem heitir Hrognhellir. Hermann: Við fórum líka að leita að skúmseggjum og ég fann eitt egg en enginn annar í fjölskyldunni minni fann egg. Ég veiddi líka tvo silunga með pabba mínum. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 28. maí 2016.
Mest lesið Sigmundur birtist fyrirvaralaust Lífið Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Lífið Leikarinn John Amos látinn Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Lífið Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir Lífið Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Lífið Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Lífið Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Lífið Fleiri fréttir Allt niður í tíu ára vilji viðhalda unglegri húð Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir Féll fyrir hinni pólsku Oliwiu: „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Flogið þangað sem enginn kemst nema í draumi „Stolt af mínum konum sem geisluðu af gleði“ Fóru líka upp á eiginkonuna fyrir besta útsýni landsins Draumkennt brúðkaup á Sardiníu Stórborgar fílingur í sögufrægu húsi Jóns Davíðs og Birgittu Ekki lengur undir sérstöku eftirliti Draumadrengur Söndru og Hilmars kominn í heiminn Halda styrktartónleika fyrir fjölskyldu Kolfinnu Eldeyjar Kenningar á kreik eftir ásakanir um kynferðisbrot Al-Fayed Sjá meira