Humarinn í Sigourney Weaver-súpunni kemur frá Þorlákshöfn Benedikt Bóas skrifar 18. nóvember 2016 10:00 Weaver, sem er sennilega þekktust fyrir túlkun sína á Ripley í Alien-myndunum. Mynd/Getty
Við erum kát með þetta,“ segir Kristinn Jóhannsson, eigandi Bryggjunnar í Grindavík, en bandaríska leikkonan Sigourney Weaver sagði í viðtali að humarsúpan á veitingastaðnum væri besti matur sem hún hefði smakkað í ferðalögum sínum um heiminn. „Á Íslandi fórum við í lítið sjávarþorp rétt fyrir utan Reykjavík sem heitir Grindavík og þar var indælt kaffihús þar sem sjómenn eru fastagestir,“ segir leikkonan meðal annars í viðtalinu. „Þar var boðið upp á humarsúpu sem var hnausþykk og borin fram með nýbökuðu brauði. Þetta bjargaði okkur á sínum tíma því annars hefðum við pottþétt fengið lungnabólgu,“ segir Weaver.Humarinn í súpuna kemur frá Þorlákshöfn en engin humarvinnsla er í Grindavík eftir að kvótinn var seldur. „Þetta er súpa sem kokkur á fiskiskipi kenndi mér að búa til. Hann á sinn heiður af henni þó við séum búin að betrumbæta hana aðeins. Þegar við vorum að byrja leituðum við til manns sem var tilbúinn að kenna okkur að gera góða humarsúpu því sjálfur er ég ekki veitingamaður en var með húsnæði sem passaði vel í að opna veitingastað,“ segir Kristján. Weaver og James Cameron þegar stórmyndin Avatar var frumsýnd. Mynd/GettyMikil vinna fer í hvern disk en súpan er gerð frá grunni og segir Kristján að hvergi sé leiðin stytt. „Þetta er allt búið til hér á staðnum. Hún er svolítið sérstök hvað það varðar. Það var gaman að fá Weaver í heimsókn í sumar og það var enginn að ónáða hana. Það fór vel um hana greinilega,“ segir hann stoltur
Mest lesið Kántrígoðsögnin Kris Kristoffersson látin Lífið Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Lífið Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látin Lífið Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Lífið „Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ Áskorun Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Fleiri fréttir Kántrígoðsögnin Kris Kristoffersson látin Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látin Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Krakkatían: Nótur, bankar og geitur „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Sjá meira