Um er að ræða 205 fermetra reisulegt einbýlishús á tveimur hæðum á fallegum útsýnisstað í Garðabæ. Húsið hefur verið endurnýjað að miklu leiti að innan á undanförnum árum og sá Viktoría Hrund Kjartansdóttir arkitekt um hönnun breytinganna.
Hlýlegt og töff
Stofan er einstaklega björt með bogadrengnum gluggum, arinn, mikilli lofthæð og sjónsteyptum veggjum, sem gefa rýminu mikinn karakter og glæsileika.
Eldhús og borðstofa er samliggjandi í opnu rými þar sem hlýlegur efniviður og mínímalísk hönnun ræður ríkjum. Vegleg dökkbrún viðarinnrétting prýðir eldhúsið og er með Taj Mahal kvartssít-steinn á borðum og eldhúseyju. Útgengt er úr rýminu á verönd með heitum potti og skjólveggjum.
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi.



