Innlent

Bílstjóri slapp með skrekkinn

Þorgeir Helgason skrifar
Skólabíll vó salt á vegkanti. Myndin er úr safni.
Skólabíll vó salt á vegkanti. Myndin er úr safni. vísir/Anton Brink
Skólabíll vó salt á vegkanti skammt frá brúnni yfir Leirá í Hvalfjarðarsveit í gær. Engu mátti muna að rútan ylti á hliðina og hafnaði utan vegar. Bílstjórinn var einn á ferð, á leiðinni að sækja börn í Heiðarskóla, þegar óhappið varð. Honum varð ekki meint af.

Slæmar aðstæður eru á Leirársveitarvegi og er hann varla fær fyrir hálku.

Þetta er þriðja óhappið á rúmum mánuði þar sem skapast hefur hætta á því að rúta velti á hliðina vegna aðstæðna á vegi. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×