Þrír menn og einn köttur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 8. júní 2016 11:45 "Það er ekkert sérstaklega þægilegt að ferðast um með kött,“ er niðurstaða Huldars Breiðfjörð. Vísir/GVA
Við Hafsteinn Gunnar Sigurðsson kvikmyndatökumaður fengum að fljóta með Friðriki Erni Hjaltested ljósmyndara á ferð eftir suðurströnd Íslands. Ætlunin var að taka ógleymanlega mynd af Hrollaugseyjarvita út af Suðursveit og kötturinn Filma var með í för.“ Þannig farast Huldari Breiðfjörð orð þegar hann er beðinn að lýsa í stuttu máli efni annarrar myndar af tveimur sem sýndar verða í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, annað kvöld undir yfirskriftinni Bestu vinir mannsins. Þær fjalla um samskipti manna og dýra. Ferðin varð hálfgerð hrakfallaför, að sögn Huldars. „Til stóð að fara á gúmmíbát frá Jökulsárlóni en þar var bara fullt af ís úti fyrir ströndinni svo það reyndist of hættulegt. Þá var farið í að finna annan stað, og annan stað og annan stað. Og kötturinn var greinilega með önnur plön en eigandinn svo úr þessu öllu urðu talsverð vandræði. En myndin sýnir að á bak við hinar listrænu myndir ljósmyndara getur verið gríðarleg fyrirhöfn.“ Hin myndin sem sýnd verður heitir Drottins náð og er eftir Kristján Loðmfjörð. Þar deila þrettán einstaklingar persónulegri reynslu sinni af samvistum við dýr. Myndin er tekin upp í sveitum landsins þar sem nánd við húsdýrin er ráðandi þáttur í daglegum störfum og lífi. Kvikmyndasýningin hefst klukkan 20. Myndirnar verða endursýndar 4. ágúst og 1. september á sama tíma. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 7. júní 2016.
Mest lesið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Lífið Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Lífið Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Lífið Fólk eigi ekki að vera hrætt við að skilja ekki Menning Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Lífið Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar Lífið Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Lífið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Fleiri fréttir Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Sjá meira