Lífið

Óttast að rapparinn Future ætli að myrða kærasta sinn

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Future og Ciara á meðan allt lék í lyndi.
Future og Ciara á meðan allt lék í lyndi. Vísir/Getty
Söngkonan Ciara óttast að fyrrverandi kærasti hennar og barnsfaðir hafi í hyggju að myrða núverandi kærasta hennar. Ciara eignaðist barn með rapparanum Future á meðan þau voru í sambandi en nú á hún í ástarsambandi við bandaríska ruðningskappann Russell Wilson.

Ciara hefur leitað til lögfræðinga sinna þar sem hún bendir á textabrot í nýju lagi Future sem heitir Juice. Þar beinir rapparinn orðum sínum að ruðnings kappans og hótar honum skotárás.

Ciara telur ástæðu til þess að taka þessari morðhótun alvarlega og leitar nú rétt síns til þess að fá nálgunarbann á rapparann. Þau hafa átt í harðri forræðisdeilu síðasta árið en Ciara hefur einnig höfðað mál gegn rapparanum fyrir meiðyrði en hann sagði hana vera slæma móður í útvarpsviðtali.

Hér fyrir neðan má heyra nýja lagið hans Future.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×