Lífið

Eðalmatur fyrir hlaupara

Elín Albertsdóttir skrifar
Albert hefur sett saman frábæran matseðil fyrir hlaupara, hollan og góðan.
Albert hefur sett saman frábæran matseðil fyrir hlaupara, hollan og góðan. MYND/EYÞÓR
Matgæðingurinn Albert Eiríksson veit hvað hentar best í magann fyrir hlaup. Hann setti saman girnilegan matseðil sem hentar mjög vel fyrir þá sem stunda íþróttir og líkamsrækt. Matseðillinn er stútfullur af hollustu og góðum næringarefnum.

Albert segist hlaupa reglulega sér til ánægju en hann sé ekki keppnis­maður. „Það var viss áskorun að setja saman þennan matseðil fyrir hlaupara. Ég talaði við nokkra hlaupara og stúderaði vel hvað best er að borða fyrir fólk. Til dæmis er pasta ofarlega á lista dagana fyrir hlaup. Olíur eru líka mjög mikilvægar, þess vegna valdi ég avókadó. Sætar kartöflur innihalda kalíum sem er gott fyrir hlaupara,“ segir Albert.

Sjálfur ræktar hann grænmeti, spínat, klettasalat og haugarfa. „Sumir segja að haugarfi sé illgresi en hann er sérstaklega góður í pestó,“ segir hann. „Ég borða mikið grænmeti og þessi árstími er æðislegur þar sem úrvalið er svo ferskt og gott,“ segir Albert og hér koma þessar frábæru uppskriftir.

Marsibil Bragadóttir Mogensen, barnabarn, fær sér ljúffengan og svalandi rabarbaradrykk. MYND/EYÞÓR
Svalandi rabarbaradrykkur

Virkilega ljúffengur drykkur sem er bæði mjög ljúffengur með blávatni saman við eða sódavatni. Bensonat er rotvarnarefni og fæst í flestum matvörubúðum og vínsýra fæst í Ámunni. Hressandi drykkur. Fimm kíló af rabarbara gefa rúmlega 4 lítra af vökva ( sem mætti nú eiginlega kalla þykkni).

5 kg rabarbari

5 kg sykur

1?½–2 msk. bensonat

5 g vínsýra

nokkrir dropar rauður matarlitur

Skolið rabarbaraleggina og skerið í bita. Setjið allt í hreina fötu og setjið lok yfir. Látið standa við stofuhita í 10 daga, hrærið í ca. annan hvern dag.

Sigtið rabarbarann frá, bætið matarlit saman við og setjið drykkinn á flöskur, kælið eða frystið. Ath. að þetta er eins og þykkni sem þarf að blanda með vatni eða sódavatni í sömu hlutföllum og djús.

Epla- og kjúklingasalat. Ferskt, gott sumarlegt salat sem er kjörið í samlokur eða á saltkex. MYNDir/EYÞÓR
Epla- og kjúklingasalat

Ferskt, gott sumarlegt salat sem er kjörið í samlokur eða á saltkex. Salatið má útbúa daginn áður og láta standa í ísskáp yfir nótt.

1/3 b mæjónes

1/3 b grísk jógúrt

1 msk. eplaedik

1 msk. hunang

salt og pipar

1 b kasjúhnetur (ristaðar á pönnu ef vill)

ca. 700 g eldaður kjúklingur, skorinn í bita

2 b niðurskorin epli

Blandið saman mæjónesi og grískri jógúrt, bætið við ediki, hunangi, salti og pipar. Setjið að síðustu hnetur, kjúklinginn og eplin og blandið vel saman.

Látið standa í ísskáp í ca. klst.

 

Pasatasalat með gúrkum og tómötum.
Pastasalat með gúrkum og tómötum



Þessi árstími er ekki hvað síst góður fyrir allt það góða og holla grænmeti sem hefur sprottið vel í góðri tíð undanfarinna vikna. Góð olía er mikilvæg fyrir líkamann. 

Gott er að eiga nokkrar tegundir af góðum vönduðum olíum og nota til skiptis.

ca. 3 b soðið pasta, t.d. slaufur

500 g litlir tómatar, skornir í helminga

2 gúrkur, skornar í bita

½ b ólífur, skornar í helminga

½ b fetaostur

2-3 þroskuð avókadó, skorið í bita

2 msk. ferskt dill

Dressing

¾ b ólífuolía

6 msk. rauðvínsedik

2 tsk. sykur

2 hvítlauksrif, saxað smátt

1?½ msk. dill (ferskt)

1?½ msk. oreganó

½ tsk. salt

pipar

Setjið allt í matvinnsluvél og maukið vel, mjög vel.

Salat

Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. Hellið á sigti og skolið með köldu vatni.

Setjið pastað ásamt tómötum, gúrkum, ólífum, feta og avókadó í stóra skál og blandið dressingunni saman við. Geymið í ísskáp í ca. 3 klst. Skreytið með dilli.

Hægelduð kínóa- og kókossúpa, bráðholl og góð.
Hægelduð kínóa- og kókossúpa

Það er kjörið að setja allt í pottinn, láta suðuna koma upp og slökkva undir. Síðan er ágætt að pakka pottinum vel inn í handklæði, svuntur, þurrkustykki og annað sem er við höndina. Þannig helst hitinn og súpan sýður á meðan þið farið t.d. út að hlaupa.

1 laukur

2 msk. olía

1 sæt kartafla skorin í bita (ca. 3 bollar)

1 stórt spergilkálshöfuð, skorið í bita (ca. 2 bollar)

1 ds niðursoðnar kjúklingabaunir, soðinu hellt af og þær skolaðar

1 ds niðursoðnir tómatar í bitum

2 ds kókosmjólk

1/3 b kínóa

2 hvítlauksrif, söxuð smátt

1 msk. ferskt engifer, saxað smátt

1 msk. túrmerik

1 msk. tamari sósa

1-2 tsk. grænmetis– kraftur

smá chili

1?½ b vatn

salt og pipar

Saxið laukinn og léttsteikið hann í olíu í sæmilega stórum potti. Bætið öllum hráefnum saman við og sjóðið við vægan hita í 1-2 klst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×